Húsnæðisfrumvarp félagsmálaráðherra leiði af sér hærra leiguverð sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. ágúst 2015 13:06
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, segir að verði húsnæðismálafrumvarp félagsmálaráðherra að lögum muni það leiða af sér hærra leiguverð á félagslegum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og að vanskil muni aukast verulega. Það muni koma niður á lánskjörum félagsins, en húsaleigubætur eru nær helmingur af heildartekjum þess. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, lagði frumvarpið fram á liðnu þingi. Nokkrar deilur urðu um það og að hennar sögn hvatti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hana til að draga það til baka eftir kostnaðarmat í fjármálaráðuneytinu. Auðun skilaði af sér umsögn um frumvarpið í gær. „Fari þetta frumvarp í gegn óbreytt þá er félagsbústöðum ekki lengur heimilt að fá greiddar húsaleigubætur beint til sín frá yfirvöldum og við erum hrædd við það að það gæti leitt af sér meiri vanskil en það hefur áhrif á tekjustreymi félagsins, þar sem við höfum ekki öðrum tekjum að dreifa heldur en leigutekjum. Ef vanskil aukast þá bitnar það helst á þeim sem eru í skilum við félagið í formi hærri leigu,” segir hann. Í umsögninni kemur fram að þar sem félagið geti ekki gengið að húsnæðisbótum vísum, muni lánskjör félagsins versna á almennum markaði, sem leiði af sér hækkun kostnaðar og leigu. „Húsaleigubætur eru um 45 prósent af tekjum félagsbústaða, bæði sérstakar og almennar húsnæðisbætur. Öll óvissa um tekjustreymi hefur áhrif á lánshæfi og mat fjármálafyrirtækja á getu til þess að greiða af okkar skuldbindingum,” segir Auðun. Í samantekt um frumvarpið segir að markmið þess sé að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda þannig að stuðningurinn verði jafnari húsnæðisstuðningi við kaupendur íbúðarhúsnæðis innan vaxtabótakerfisins, og liður í að jafna húsnæðisstuðning hins opinbera við ólík búsetuform. Auðun segir að hans mat sé að ný lög um húsnæðibætur ættu að veita einstaklingum sem leigja herbergi á almennum markaði rétt til húsaleigubóta, en það myndi auka framboð af leiguúrræðum.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira