Hátíðarhöld Kópavogsbæjar hófust þrátt fyrir mótmæli lögfræðinga Stefán Árni Pálsson skrifar 9. maí 2015 15:54 Ármann Kr. var sáttur með sína kökusneið. mynd/kópavogsbær
Fjöldi manns gæddi sér á afmælisköku í boði Kópavogsbæjar í Smáralind í dag en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og bæjarfulltrúar skáru kökuna fyrir gesti og gangandi með dyggri aðstoð skáta úr Kópavogi. Afmæliskakan er hluti af því sem bryddað er upp á í tilefni afmælis Kópavogs um helgina. Kópavogsbær bauð sundlaugargestum einnig upp á ís, kaffi og súkkulaði í sundlaugum bæjarins í dag. Þá var handverkssýning eldri borgara í félagsmiðstöðvum þeirra í dag og stendur hún yfir á morgun líka. Á morgun verður svo efnt til stórtónleika í Kórnum í tilefni sextugsafmælis bæjarins. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 en húsið opnar klukkan 15. Hátt í 600 tónlistarmenn koma fram á tónleikunum, núverandi og fyrrverandi Kópavogsbúar. Meðal þeirra sem koma fram eru Dr. Gunni, Salka Sól, Erpur, Fræbbblarnir, Ríó tríó, kórar bæjarins og Skólahljómsveit Kópavogs. Kynnar eru Helgi Pétursson og Saga Garðarsdóttir. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ eru íbúar hvattir til að taka strætó í Kórinn en frá klukkan tvö gengur strætó frá Hamraborg í Kórinn með viðkomu í Smáralind. Stéttarfélag lögfræðinga hefur efnt til mótmæla við innganginn í Kórinn í kvöld klukkan 18:45.Sjá einnig: Lögfræðingar mótmæla fyrir utan KórinnÁstæðan fyrir mótmælunum er meint verkfallsbrot sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en hann gaf út tvö skemmtanaleyfi fyrir bæinn vegna árshátíðar starfsmanna bæjarins og 60 ára afmælishátíðar nú um helgina, meðal annars stórtónleika í Kórnum.
Tengdar fréttir Lögfræðingar hóta aðgerðum í Kópavogi Stéttarfélag lögfræðinga innan BHM munu kæra Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu fyrir verkfallsbrot. 8. maí 2015 17:08 Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók við bréfi Fulltrúar BHM og Stéttarfélags lögfræðinga funduðu með sýslumanni höfuðborgarsvæðisins nú áðan þar sem skorað var á hann að draga til baka veitingu leyfa fyrir skemmtihaldi um helgina í Kópavogi. 8. maí 2015 15:38 Lögfræðingar mótmæla fyrir utan Kórinn Stéttarfélag lögfræðinga efnir til mótmæla við innganginn í Kórinn í Kópavogi í kvöld klukkan 18:45. 9. maí 2015 11:37 Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira
Lögfræðingar hóta aðgerðum í Kópavogi Stéttarfélag lögfræðinga innan BHM munu kæra Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu fyrir verkfallsbrot. 8. maí 2015 17:08
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók við bréfi Fulltrúar BHM og Stéttarfélags lögfræðinga funduðu með sýslumanni höfuðborgarsvæðisins nú áðan þar sem skorað var á hann að draga til baka veitingu leyfa fyrir skemmtihaldi um helgina í Kópavogi. 8. maí 2015 15:38
Lögfræðingar mótmæla fyrir utan Kórinn Stéttarfélag lögfræðinga efnir til mótmæla við innganginn í Kórinn í Kópavogi í kvöld klukkan 18:45. 9. maí 2015 11:37