Fékk bætur vegna eineltis Hjálmars Viktoría Hermannsdóttir skrifar 1. júlí 2015 09:00 Sálfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að starfsmaðurinn hefði verið lagður í einelti af Hjálmari sem hefði haft mikil áhrif á hann. vísir/stefán
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, gerðist sekur um einelti gagnvart fyrrverandi starfsmanni hjá Keili. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var af sálfræðingum vegna málsins.Hjálmar ÁrnasonFréttablaðið sagði frá því í nóvember að starfsmaðurinn teldi sig hafa orðið fyrir einelti í marga mánuði sem hófst eftir að starfsmaðurinn fór fram á leiðréttingu launakjara hjá félaginu fyrir hönd starfsmanna en hann var trúnaðarmaður þeirra. „Það er búið að afgreiða það mál og ekki meira um það að segja. Ég ætla ekki að tjá mig frekar um málið, þetta eru viðkvæm mál og erfið mál og ég ætla ekki að tjá mig frekar um það,“ segir Hjálmar þegar hann er spurður um málið. Sálfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að Hjálmar hefði lagt starfsmanninn í einelti. Það hefði hann gert með því að „bregðast með óviðeigandi hætti“ við framgöngu starfsmannsins sem trúnaðarmanns starfsmanna í launadeilunni og í kjölfarið breyta framkomu sinni og viðmóti í garð starfsmannsins á þann hátt að hann upplifði hundsun. Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að „með viðbrögðum sínum hafi hann vanvirt hlutverk starfsmannsins sem trúnaðarmanns og eigið hlutverk sem stjórnanda“. Samkvæmt samkomulagi sem gert var við manninn átti hann að fá greidd full laun átta mánuði frá því hann hætti störfum hjá fyrirtækinu vegna eineltisins, miskabætur upp á 600 þúsund „til að mæta vanlíðan sinni og skaða vegna málsins“, eins og það er orðað, auk þess sem lögfræðikostnaður hans var borgaður. Upphæðin sem maðurinn fékk vegna starfslokanna nam ekki þeim launum sem hann hefði átt að fá. Lögfræðingur mannsins hefur ítrekað við félagið að standa við samkomulagið. Eftir niðurstöðuna bað Hjálmar starfsmanninn skriflega afsökunar á þeim óþægindum og vanlíðan sem hann hefði valdið honum. „Ég geri mér betur grein fyrir hvað þetta hefur verið þér erfitt þegar mér eru kynntar niðurstöður fagaðila þar sem fram kemur að með framferði mínu hafi átt sér stað einelti í þinn garð,“ sagði Hjálmar í bréfinu. Hann sagðist hafa lært af þessu og að slík viðbrögð hans sem stjórnanda endurtækju sig ekki.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira