Gagnrýnir tilkynningu um lokun lyfjaverksmiðju Actavis Aðalsteinn Kjartansson skrifar 1. júlí 2015 12:19 Formaður Eflingar segist hafa skynjað á fulltrúum Actavis að þeim þyki miður sú staða sem upp sé komin. Vísir/GVA
Stéttarfélagi starfsmanna í lyfjaverksmiðju Actavis var tilkynnt um ákvörðun um að loka ætti verksmiðjunni morguninn sem starfsmönnum var sagt frá ákvörðuninni. Formaður Eflingar gagnrýnir vinnubrögð fyrirtækisins. Ákvörðunin var tilkynnt starfsmönnum á mánudag en hún felur í sér að 300 störf í lyfjaverksmiðju fyrirtækisins í Hafnarfirði verða flutt erlendis. Ákvörðunin er tekin til að ná fram hagræðingu í rekstri eftir að félagið keypti annað lyfjafyrirtæki á síðasta ári. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, stéttarfélags stórs hluta starfsmanna lyfjaverksmiðjunnar, fundaði með fulltrúum Actavis í gær. Þar var farið yfir hvernig staðið yrði að ákvörðuninni. „Við fengum á fund okkar tvo fulltrúa frá þeim þar sem þeir fóru yfir málið og fóru svo sem í gengum það sama og fram hefur komið í fréttum. Fóru í gegnum það hvernig þeir myndu standa að málum og hvaða áform væru þarna undir,“ segir hann.Sigurður gagnrýnir Actavis fyrir hvernig staðið hafi verið að tilkynningu ákvörðunarinnar. Haft var samband við skrifstofu Eflingar morguninn sem aðgerðirnar voru kynntar fjölmiðlum og starfsfólki. Tilkynning um aðgerðirnar barst fjölmiðlum klukkan 17 mínútur yfir tíu á mánudags morgun. „Það breytir hins vegar engu að svona hlutir þurfa að fá miklu betri yfirferð þá með einhverjum tíma áður. Þannig að alla vega þannig að þeir sem eru trúnaðarmenn starfsmanna séu upplýstir með einhverjum þeim fyrirvara sem eðlilegur getur kallast, og menn eru þá beðnir um trúnað, en þetta sé ekki gert með eins eða tveggja tíma fyrirvara,“ segir hann. Sigurður segir að ákvörðunin sé mjög mikið áfall fyrir fólk, sumir sem missa starfið hafi unnið stærstan hluta starfsævinnar hjá fyrirtækinu. Hann segist þó skynja á fulltrúum Actavis að þeim þyki miður að þetta sé staðan. „Maður skynjaði það að mönnum þyki það miður að þessi staða sé komin upp en lengra svo sem nær það ekki og það eru gefnar bara sömu skýringar og fram hafa komið í fjölmiðlum að þessi stærðarlega rekstrareining sé of smá til að hún sé rekin hérna á Íslandi,“ segir Sigurður.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Fleiri fréttir Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Sjá meira