Efla barnastarfið með alþjóðlegu fjallaskíðamóti á Tröllaskaga Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. mars 2015 07:00 Leiðin liggur úr Fljótum um Heljartröð og Illviðrishnúk og niður í Skarðsdal. Mynd/Jón Steinar Ragnarsson „
Markmið mótsins er að efla útivist í náttúrulegu umhverfi svo og að vekja athygli á töfrum Tröllaskaga,“ segir í tilkynningu um alþjóðlega fjallaskíðamótið Super Troll Ski Race sem fram fer á Tröllaskaga í byrjun maí. Með mótinu er Skíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg, að endurtaka leikinn frá því í fyrra. Þátttakendur ýmist ganga á skíðum sínum eða renna. „Mótið hefst í Fljótum og verður gengið frá Heljartröð yfir Siglufjarðarskarð í átt að Illviðrishnjúki og niður að skíðaskálanum í Skarðsdal. Keppnisleiðin er krefjandi og því mikil ögrun fyrir þátttakendur,“ segir um leiðina. Fram kemur að megintilgangur mótsins sé að efla barna- og unglingastarf Skíðafélags Siglufjarðar og að allur ágóði renni til félagsins. „Mikil gróska hefur verið í fjallaskíðamennsku á Tröllaskaga svo og úti í heimi en ástundun íþróttarinnar sameinar bæði útivist og líkamsrækt,“ segir í tilkynningu mótshaldara sem lofar veglegum verðlaunum, meðal annars þyrluskíðun. Verndari mótsins og sérstakur gestur er Tómas Guðbjartsson læknir.
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Sjá meira