Alvarlegar hótanir í garð starfsmanna algengar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. mars 2015 15:21 Hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar er starfandi áreitinefnd og fara öll mál af þessum toga í ákveðið ferli. vísir/gva
Nokkuð hefur borið á að starfsfólki Barnaverndar sé hótað eða ógnað af skjólstæðingum sínum eða aðilum þeim tengdum. Hótanirnar beinast oft að fjölskyldumeðlimum starfsfólksins og dæmi eru um að miski hafi verið unninn á eigum þeirra. Að minnsta kosti eitt slíkt mál hefur komið upp á þessu ári. Fyrstu mál þessarar tegundar komu upp árið 2006. Þá var ákvörðun tekin um að starfsmenn færu aldrei einir á vettvang þegar um bráðatilvik væri að ræða og fara þeir nú ávallt tveir eða fleiri saman. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir að með aukinni tækni hafi hótanirnar aukist umtalsvert. „Hótanir í tölvupóstum, í prívat skilaboðum á Facebook eða símleiðis eru mjög algengar. Svo eru alvarlegri hlutir eins og að fólk sé elt af heimilum sínum eða börn þeirra áreitt. Það er þó sjaldgæfara. Síðan eru dæmi um að ráðist sé á starfsmenn, á heimilum þeirra eða vinnu,“ segir hún. Þá segir hún að dæmi séu um að teknar séu af starfsfólkinu myndir, fylgst sé með því og heimili þeirra jafnvel vaktað. „Það er kannski verið að skilja eftir sig ummerki, inni á lóð eða teknar myndir. Það er þessi nálgun sem getur verið svo erfið.“ Halldóra segir að um sé að ræða fólk sem sé illa statt í sínu lífi, oft í vímuefnaneyslu, sem sé eðli máls samkvæmt ekki alltaf ánægt með það inngrip sem barnaverndarstarfsmenn hafi leyfi fyrir. Vald barnaverndarstarfsmanna, samkvæmt lögum, sé töluvert. Oft reynir ansi mikið á þolmörk starfsfólksins og margir hverjir bera kvíðboga í lengri tíma, að sögn Halldóru. Hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar er starfandi áreitinefnd og fara öll mál af þessum toga í ákveðið ferli. Hana grunar þó að fæst mál séu tilkynnt til nefndarinnar. „Starfsmenn geta fengið áfallahjálp en það sem fólki hefur þótt erfitt er að hver og einn þarf í eigin persónu að kæra málið til lögreglu undir sínu nafni. Hann fær stuðning og handleiðslu hjá yfirmönnum, en ég sem stjórnandi get ekki kært þetta ofbeldi fyrir hönd míns starfsmanns Það er það sem getur reynst fólki erfitt því þarna er þetta orðið svo persónugert í einstaklingnum en ekki í starfinu eða stofnun sem það vinnur fyrir,“ segir Halldóra.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira