Þjóðin ber mikið traust til lögreglunnar Heimir Már Pétursson skrifar 13. mars 2015 19:34 91 prósent Sjálfstæðiskjósenda ber mjög eða frekar mikið traust til lögreglunnar en einungis 2 prósent lítið eða mjög lítið traust og 6 prósent svara hvorki né. Vísir/Kolbeinn Tumi
Íslendingar bera almennt mikið traust til lögreglunnar samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins bera mest traust til lögreglunnar en stuðningsmenn Pírata minnst. Fréttablaðið og Stöð 2 könnuðu traust almennings á lögreglunni síðast liðinn þriðjudag og miðvikudag og var svarhlutfallið 78 prósent. Spurt var hversu mikið eða lítið traust fólk bæri til lögreglunnar. 78 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið eða frekar mikið traust til lögreglunnar en einungis 5 prósent mjög eða frekar lítið traust. En 17 prósent sögðu hvorki né. Nokkur munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk það sagðist styðja. Kjósendur stjórnarflokkanna treysta lögreglunni meira en kjósendur stjórnarandstöðuflokkanna en mestur er stuðningurinn meðal stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins. 91 prósent Sjálfstæðiskjósenda ber mjög eða frekar mikið traust til lögreglunnar en einungis 2 prósent lítið eða mjög lítið traust og 6 prósent svara hvorki né.vísirÞeir sem kjósa Framsóknarflokkinn koma næstir í traustinu. 86 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins bera mikið traust til lögreglunnar en 3 prósent lítið og 11 prósent segjast hvorki bera mikið eða lítið traust til lögreglunnar. Af stjórnarandstöðuflokkunum er traustið til lögreglunnar mest meðal þeirra sem segjast styðja Samfylkinguna, eða 79 prósent, 2 prósent bera lítið traust til lögreglunnar en 20 prósent svara hvorki né. 72 prósent þeirra sem gefa sig upp á Vinstri græn bera mikið eða frekar mikið traust til lögreglunnar, 6 prósent mjög eða frekar lítið en 22 prósent svara hvorki né. Heldur færri bera traust til lögreglunnar meðal stuðningsmanna Bjartrar framtíðar, eða 63 prósent, 13 prósent bera mjög eða frekar lítið traust til hennar og 22 prósent svara hvorki né. Minnst er traustið til lögreglunnar hins vegar meðal kjósenda Pírata eða 62 prósent. 17 prósent þeirra bera mjög eða frekar lítið traust til lögreglunnar og 21 prósent bera hvorki mikið né lítið traust til hennar. Lítill munur er á trausti til lögreglunnar eftir kjördæmum en það er þó minnst í norðvesturkjördæmi.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira