Þriðjungur frumvarpa frá ríkisstjórninni dagar uppi Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 9. júlí 2015 07:00 Ríkisstjórninni tókst að koma 73 prósentum lagafrumvarpa sinna í gegnum nýyfirstaðið þing. Aðeins sjö af 96 þingsályktunartillögum óbreyttra þingmanna eru samþykktar. vísir/vilhelm
Alls voru samþykkt 90 stjórnarfrumvörp á nýyfirstöðnu þingi, eða 73 prósent þeirra 120 frumvarpa sem ríkisstjórnin lagði fram. Það þýðir að þriðjungur frumvarpa frá ríkisstjórninni dagar uppi og þarf að leggja þau fram að nýju í haust eigi þau að fást samþykkt. Staðan er enn verri þegar litið er til allra lagafrumvarpa, það er að segja bæði stjórnarfrumvarpa og þeirra sem þingmenn leggja fram. Alls voru lögð fram 207 lagafrumvörp og 105 þeirra urðu að lögum. Það þýðir að rétt um helmingur frumvarpa nær í gegn, hinn helmingurinn dagar uppi. Á síðustu dögum þingsins runnu málin í gegn eins og á færibandi. Vikurnar þar á undan var hins vegar allt í lás og engin mál fóru í gegn, utan lög á verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og BHM. Svo virðist sem betri líkur séu á því að þingsályktunartillögur nái í gegn, að því gefnu að þær komi frá ríkisstjórninni. Ráðherrar lögðu fram 19 þingsályktunartillögur og 16 þeirra voru samþykktar. Af þeim fjórum þingsályktunartillögum stjórnarinnar sem ekki urðu að lögum eru tvær ættaðar frá utanríkisráðherra: Áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016-2019 (Þróunarsamvinnustofnun) og Þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland. Að auki er það tillaga umhverfis- og auðlindaráðherra um Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og fjögurra ára samgönguáætlun innanríkisráðherra fyrir árin 2015 til 2018. Þegar litið er til allra þingsályktunartillagna sem fram eru lagðar er hlutfallið hins vegar mun verra og ljóst að það eykur líkurnar umtalsvert á því að slíkar tillögur séu samþykktar að þær komi frá ráðherra. Alls voru lagðar fram 115 þingsályktunartillögur en aðeins 22 samþykktar. Það þýðir að af 96 þingsályktunartillögum sem óbreyttir þingmenn lögðu fram voru aðeins sjö samþykktar. Þó erfitt sé að fullyrða hvað séu stór mál, er óhætt að segja að á meðal þeirra stærstu sem ekki fóru í gegn séu frumvörp félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðismál; húsaleigulög, húsnæðisbætur og húsnæðissamvinnufélög. Fjögur lagafrumvörp sem ráðherrar lögðu fram voru aldrei tekin á dagskrá og biðu því enn fyrstu umræðu þegar þingi var frestað. Þar af eru þrjú frá innanríkis- og dómsmálaráðherra: Frumvarp um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, frumvarp um almannavarnir og frumvarp um tekjustofna sveitarfélaga. Þá var frumvarp heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni ekki heldur tekið á dagskrá.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira