Fór á fund þess sem braut gegn henni þegar hún var sex ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. ágúst 2015 14:37 Björk Brynjarsdóttir. Mynd/Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
Björk Brynjarsdóttir segir líf sitt hafa breyst til hins betra eftir að hún horfðist í augu við sinn mesta ótta og fór á fund aðila sem braut kynferðislega gegn henni þegar hún var sex ára gömul. Björk lýsti því í viðtali við Fréttatímann fyrir rúmu ári hvernig brotið var gegn henni og upplifði í kjölfarið mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum eins og hún hafði reiknað með. Hins vegar var bakslagið mun meira en hún hafði getað ímyndað sér. Í opinskáum pistli, sem lesa má í heild sinni hér að neðan, segist Björk hafa rúmum mánuði eftir viðtalið áttað sig á því hve lítið Ísland væri. Fyrr eða síðar myndi hún hitta geranda á förnum vegi. Í kjölfarið tóku stress og hræðsla völdin. „Á komandi mánuði stigmagnaðist stressið og hræðslan um að ég myndi rekast á hann. Ég var aldrei róleg, hvorki í vinnu né skóla og þegar ég lagðist upp í rúm í lok dags fór ég beint í fight or flight mode,“ segr Björk. Hún hafi haldið sér vakandi og upptekinni eins lengi og hún gat áður en hún náði að sofna.Hver martröðin á fætur annarri „Þar dreymdi mig hins vegar hverja martröðina á fætur annarri. Að lokum hætti ég að geta sofið og orkan silaðist hægt og rólega úr mér. Ég grét og reiddist þar til tárin voru búin og drakk mig meira og minna fulla allan desembermánuð.“ Björk leitaði til fagaðila sem benti henni á þá staðreynd að aðeins eitt væri í stöðunni. Að hitta manninn sem beitti hana ofbeldi. Eftir svefnlausa nótt í janúar settist hún við símann, með vinkonu sína sér til stuðnings, og hringdi í geranda. Hún kynnti sig sem „Björk Brynjars, stelpuna sem þú beittir kynferðisofbeldi árið 2000“. Gerandinn var fjórtán ára þegar hann braut gegn Björk og fjölskylduvinur. Björk segist hafa þerrað tárin í spennufalli að símtali loknu. „Símtalið var ótrúlegur sigur, þó bara smávægilegur miðað við það sem koma skyldi, því við höfðum mælt okkur mót að mánuði liðnum.“ Í framhaldinu flaug Björk á fund gerandans norður yfir heiðar og hitti hann.Ræddi við fjölskyldu mannsins „Ég hafði ekki hugmynd hvað fundurinn myndi leiða í ljós en þetta snerist fyrst og fremst um að ég gæti endurheimt líf mitt aftur og horfst í augu við minn stærsta ótta. Það er skemmst frá því að segja að þennan dag tók maðurinn sem beitti mig ofbeldi í fyrsta sinn ábyrgð á verknaðinum.“ Björk fullyrðir að samtalið hafi líka verið léttir fyrir manninn. „Að hafa beitt ofbeldi er þung byrgði að bera með sér og það er mikilvægt að hann fái líka rými til að vinna úr þeim pakka. Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þessari tragík komi tveir þroskaðir og heilbrigðir einstaklingar.“ Björk gerði svo þá kröfu til geranda að segja fjölskyldumeðlimum sannleikann um það sem gerðist fyrir fimmtán árum. Hún hafi svo farið norður og rætt við fólkið hans. Í því hafi falist ótrúleg hreinsun því kynferðisafbrot snerta yfirleitt fleiri en bara geranda og brotaþola segir Björk.Lærir að lifa með þessu Hún segist meðvitað síðastliðið ár hafa reynt að taka upp umræðuna um kynferðisbrot í samræðum við fólk. Mikilvægt sé að einn daginn verði umræðan bæði sjálfsögð og auðveldari. Þögnin lami ekki bara brotaþola heldur samfélagið allt. „Við eigum það til að „velja lið" þegar kemur kynferðisofbeldi. Í því skyni langar mig minna á að rétt eins og við erum með fullu fólki í liði þegar við tökum af því bíllyklana eftir partí, erum við í liði með gerendum þegar við hjálpum þeim að taka ábyrgð á gjörðum sínum.“ Hún segir að kynferðisofbeldi sé ekki eitthvað sem maður fyrirgefi og litlu réttlæti sé hægt að ná fram. Hins vegar sé hægt að læra að lifa með þessu. „Ég er búin að endurheimta svefninn og orkuna og í fyrsta sinn er ég hamingjusöm án nokkurra skilyrða.“Mamma segir stundum að ég þurfi að passa að standa vörð um sjálfa mig. Ég á það til að deila of miklu og treysta of mö...Posted by Björk Brynjarsdóttir on Monday, August 17, 2015
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Sjá meira