Fengu veggjalús í sumarbústað Kennarasambandsins Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 17. ágúst 2015 20:30
Leikskólastjóri, sem varð fyrir skaða eftir að hafa lent í veggjalús í sumarbústað sem hún leigði í gegnum Kennarasambandið, segir að stéttarfélagið, sem hún hefur verið í í tugi ára, vilji ekki axla ábyrgð í málinu. Síðustu páska leigði Erla Stefanía Magnúsdóttir sumarbústað á Glaðheimum á Blönduósi ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Unga parið fór norður sólarhring á undan henni en varð fljótlega vart við að ekki var allt með felldu í húsinu. Þar var allt morandi í skordýrum sem reyndust vera veggjalýs eða bed bugs. Eftir að hafa kannað málið stuttlega ákváðu þau að fara strax úr bústaðnum þar sem þau skildu allt sitt eftir, föt og innkaupapoka fulla af mat. Þau komu aftur í bæinn á náttfötunum einum saman sem voru svo sett í svartan ruslapoka og þeim hent. Auk þess gátu þau hvorki notað bílinn sem þau voru á né tölvu sem var meðferðis í viku eftir að hafa lent í veggjalúsinni. Erla setti sig strax í samband við meindýraeyði og heilbrigðiseftirlit norðurlands. „Ég heyrði í Sigurjóni sem hefur með þetta mál að gera hjá heilbrigðiseftirlitinu og hann sagði að hann hefði þurft að loka þessum húsum áður vegna veggjalúsa. Samt voru þau ennþá í útleigu,“ segir hún. Erla lagði út fyrir meindýraeyði vegna málsins auk þess sem dóttir hennar borgaði háan læknis og lyfjakostnað, þar sem bit voru enn að koma upp tíu dögum síðar. Erla segir svör Kennarasambandsins hafa verið á þá leið að tryggingar næðu ekki yfir slík atvik. „Það er furðulegt að ef ég lendi í svona óvæntum atvikum að það sé á mína ábyrgð, ekki á ábyrgð Kennarasambandsins og ekki á ábyrgð eiganda. Það þarf að upplýsa alla félagsmenn um þessa hluti, að mínu mati er það mjög mikilvægt. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta sé svipað í VR, BHM og á öðrum stöðum. Hver á að borga ef þú lendir í svona vágesti sem er til staðar í húsinu þegar þú kemur? “ Erla hefur verið í Kennarasambandinu í fjöldamörg ár og meðal annars setið í stjórn orlofssjóðsins. Hún sagði sig úr stjórninni eftir þessa lífsreynslu. „Ég er bara miður mín. Ég hef alltaf verið mjög stolt af mínu stéttarfélagi og er búin að starfa þar í 24 ár. Ég er miður mín yfir því að hafa þurft að standa í þessu í fimm og hálfan mánuð. Ég óska engum að lenda í þessu og vildi að stéttarfélagið mitt hefði brugðist betur við,“ segir hún.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira