Konur hafna ríkisstjórninni jón hákon halldórsson skrifar 23. júní 2015 09:00 vísir/gva
Rúmlega þriðjungur svarenda styður ríkisstjórnina en tæplega tveir af hverjum þremur styðja hana ekki. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins. Rúmlega fjórir af hverjum tíu karlmönnum styðja ríkisstjórnina en einungis þrjár af hverjum tíu konum. „Ég ímynda mér að þegar við förum núna að sjá meiri árangur af He4she og jafnvel húsnæðismálum og meira af þessum mjúku málum, sem eru þó í senn hörð mál, þá fari konur að opna aðeins betur augun,“ segir Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna, um niðurstöður könnunarinnar. „Við viljum að raddir kvenna heyrist og það eru svona nærmálefni sem skipta konur máli,“ segir Anna Kolbrún. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lagt sig fram um að vekja athygli á He4She-átakinu sem leikkonan Emma Watson ýtti úr vör. „Nú, þegar 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna er minnst, eru þær vel meðvitaðar um hversu lítið konur hafa í raun komið að mikilvægum ákvörðunum í stjórnmálasögunni. Það gæti verið að þeim finnist núverandi ríkisstjórn endurspegla það að einhverju leyti,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Hún bendir á að nú sé til dæmis nýafstaðin kynning á afnámi gjaldeyrishafta og þar hafi konur verið lítt sýnilegar. „Þetta skiptir máli og þarna er augljóst tækifæri fyrir stjórnarflokkana til að eflast - með því að auka völd kvenna. Konur vilja sjá konur í forystu jafnt sem karla.“Séu svörin skoðuð í heild sést að 32 prósent svarenda segjast styðja ríkisstjórnina, 55 prósent styðja hana ekki, 10 prósent taka ekki afstöðu og þrjú prósent svara ekki. Séu einungis skoðuð svör þeirra sem afstöðu taka sést að 37 prósent svarenda styðja ríkisstjórnina en 63 prósent styðja hana ekki. Séu skoðuð svör þeirra karlmanna sem afstöðu taka sést að 43 prósent styðja ríkisstjórnina en 57 prósent styðja hana ekki. Aftur á móti styðja einungis 29 prósent kvenna, sem afstöðu tóku, ríkisstjórnina en 71 prósent styður hana ekki. Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.249 manns þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 15. og 16. júní. Svarhlutfallið var 64,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira