Ákveðið að ráða reyndan rekstrarmann í stól bæjarstjóra Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 16. ágúst 2015 21:15
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir að bæjarstjórn hafi ákveðið að ráða reyndan rekstrarmann í starf bæjarstjóra. Meðal annars til að spara ráðgjafakostnað sem hafi verið óheyrilega mikill í tíð fyrri meirihluta. Gagnrýnt er að launakostnaður bæjarstjórans hafi aukist um margar milljónir meðan tólf reyndum starfsmönnum sé sagt upp hjá bænum vegna hagræðingar. Rósa segir að uppsagnir starfsmannanna hafi verið nauðsynlegar vegna fortíðarvanda. „Það er aldrei réttur tími til að segja upp fólki og það eru alltaf sársaukafullar eins og þú segir. Þær eru jafn sársaukafullar núna eins og þær voru fyrir fjórum árum þegar að fráfarandi meirihluti sagði yfir 70 manns upp í þremur uppsagnarhrinum. Þetta er alltaf sársaukafullt og þetta er neyðarúrræði.“ Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýndi uppsagnirnar harðlega í gær og sagði að launakostnaður bæjarstjórans væri á sama tíma fimm milljónum hærri á ári. „Hafnarfjörður er nefnilega fyrst og fremst samfélag en ekki eitthvert excelskjal og starfsfólk bæjarins auðvitað fyrst og fremst manneskjur, en ekki bara tölur á blaði,“ segir Gunnar Axel Axelsson.Ráðinn vegna þekkingar og reynslu Rósa segir ekkert nýtt í launakjörum bæjarstjórans. Hann hafi verið ráðinn inn vegna reynslu og þekkingar og rekstri og það hafi margborgað sig. „Þarna er maður með gríðarlega mikla reynslu og sem dæmi má nefna að á fyrri hluta síðasta árs voru notaðar gríðarlega upphæðir í utanaðkomandi fjármálaráðgjöf. Eins og til dæmis einstakt verkefni sem kostaði um 120 til 30 milljónir króna. Um var að ræða aðstoð eða ráðgjöf við endurfjármögnun á lánum sveitarfélagsins.“ „Það er samskonar verkefni sem núverandi bæjarstjóri hefur tekið að sér í öðrum sveitarfélögum og ég fullyrði að hann hefði getað tekið að sér.“ Gunnar Axel segir þó fráleitt að draga alþjóðlegan ráðgjafa, sem hafi verið fenginn til að endurfjármagna lán bæjarins eftir efnahagshrunið, inn í þessa umræðu. „Með fullri virðingu fyrir núverandi bæjarstjóra veit ég ekki til þess að hann hafi nokkra einustu þekkingu eða reynslu af alþjóðlegri samningagerð af slíkri stærðargráðu,“ segir Gunnar Axel.
Tengdar fréttir Bæjarstjórinn fékk launahækkun upp á fimm milljónir Laun bæjarstjórans í Hafnarfirði hafa hækkað um tæp 28 prósent meðan mikill niðurskurður hefur átt sér stað í rekstri bæjarins. 15. ágúst 2015 20:00 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
Bæjarstjórinn fékk launahækkun upp á fimm milljónir Laun bæjarstjórans í Hafnarfirði hafa hækkað um tæp 28 prósent meðan mikill niðurskurður hefur átt sér stað í rekstri bæjarins. 15. ágúst 2015 20:00