Sendi upplýsingar í eineltismáli í leyfisleysi ingvar haraldsson skrifar 6. júlí 2015 07:00 Áminningarferli stóð yfir gagnvart forstöðumanninum þegar greinargerðin var send. mynd/einar ólafsson
Forstöðumanni stofnunar sem heyrir undir Kópavogsbæ var óheimilt að dreifa viðkvæmum persónuupplýsingum um undirmann sem sakað hafði hann um einelti. Þetta er niðurstaða Persónuverndar sem hefur úrskurðað í málinu. Velferðarsvið Kópavogs sendi forstöðumanninum greinargerð um eineltismálið þar sem áminningarferli stóð yfir gagnvart honum. Í greinargerðinni komu fram kvartanir undirmannsins, sem var kvenkyns, gagnvart forstöðumanninum, og viðtöl við samstarfsmenn þeirra vegna málsins. Forstöðumaðurinn sendi greinargerðina í tölvupósti til samstarfsmanna konunnar þrátt fyrir að greinargerðin væri merkt trúnaðarmál. Forstöðumaðurinn segist hafa sent tölvupóstana sem einstaklingur en ekki yfirmaður hjá stofnuninni. Hann hafi viljað athuga hvort rétt hefði verið haft eftir samstarfsmönnum konunnar. Persónuvernd bendir hins vegar á að það sé Kópavogsbæjar en ekki mannsins að athuga hvort rétt sé eftir starfsfólki haft. Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að konan hafi ekki greint samstarfsmönnum sínum frá þeim viðkvæmu persónupplýsingum sem fram komu í greinargerðinni líkt og forstöðumaðurinn hafi haldið fram. Hún hafi einungis gefið samstarfsmönnum sínum skýringar á veikindaleyfi sem hún hafi farið í vegna málsins.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira