Löggum fjölgað á djamminu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júlí 2015 12:16 Skemmtistaðir í miðbænum eru opnir til allt að 4:30 aðfaranótt laugardags og sunnudags. Má þar nefna staði eins og Austur, American bar og Loftið í Austurstræti. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri vinna saman að tilraunaverkefni sem miðar að auknu sýnilegu eftirliti í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða göngueftirlit og reiðhjólaeftirlit auk þess sem stefnt er að fjölgun eftirlitsferða á merktum lögreglubifreiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Markmiðið með verkefninu er að auka öryggi og öryggistilfinningu íbúa og gesta miðborgarinnar og fækka þar ofbeldisbrotum. Frá árinu 2007 til 2015 hefur ofbeldisbrotum í miðborg Reykjavíkur fækkað um liðlega þriðjung, úr 534 brotum í 342. Fjöldi þeirra hefur hins vegar haldist nokkuð jafn frá 2011 og eru brotin 300 að meðaltali á því tímabili eða 25 kærur á mánuði. Brotin eru misalvarleg með tilliti til meiðsla, allt frá minniháttar pústrum yfir í kýlingar og jafnvel spörk þar sem áverkar geta verið miklir. Þá eru ástæður þeirra mismunandi en langflest eru þau tilviljanakennd og má rekja til ölvunar.Stytta viðbragðstíma Setja á aukinn þunga í eftirlit lögreglu aðfaranótt laugardags og sunnudags á milli klukkan tvö og fimm. Reynslan sýni að flest ofbeldisbrot eigi sér stað á þeim tíma. Markmiðið er að koma í veg fyrir brot, stytta viðbragðstíma og auka hlutfall upplýstra brota. Hvetur lögreglan aðra einnig til árvekni í þessu sambandi, að taka afstöðu gegn ofbeldi og gera þannig sitt til að fækka brotum. Verkefni lögreglu verður metið vikulega og mat lagt á árangur þess. Því lýkur formlega 15. september og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira