Gagarín ertir skynfæri útlendinga Jakob Bjarnar skrifar 4. nóvember 2015 10:29 Kristín Eva má vera ánægð með sig og sitt fólk í Gagarín, en þau hafa verið að sópa til sín alþjóðlegum verðlaunum fyrir verk sín.
Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín er athyglisvert fyrirtæki, eitt fárra sem lifði af dott-com-bóluna sem sprakk með tilþrifum uppúr aldamótum og hefur verið að gera það gott á alþjóðavettvangi á undanförnum árum. Í síðustu viku hlaut fyrirtækið hin virtu German Design Awards 2016 – tvenn verðlaun frekar en ein. Gagarín var verðlaunað fyrir gagnvirk atriði í Villihreindýrasýningu í Noregi og Mannréttindasafninu í Kanada. Alls fékk fyrirtækið fjórar tilnefningar, en hin verkefnin sem hlutu tilnefningu voru Eldheimasýningin í Vestmannaeyjum og Olíusýningin í Oslo. Meðal fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu í sama flokki, eða Interactive User Experience eru Benz, BMW, Lamborghini, Sky Deutschland og Deutsche Telekom, þannig að Gagarín er þarna í góðum félagsskap risastórra alþjóðlegra fyrirtækja. Að sögn Kristínar Evu Ólafsdóttur hjá Gagarín eru þetta þriðju alþjóðlegu verðlaunin sem Gagarín hlýtur á árinu. „Já, á árinu hlaut fyrirtækið heiðursverðlaun SEGD og tvenn verðlaun á European Design Awards.“Verkefni um heim allanVísir spurði Kristínu Evu hvað það væri við verkefni þeirra og sýningar sem dómnefndirnar eru einkum að fjalla um og falla fyrir en henni þótt best að afgreiða þá spurningu með að vísa í umsagnir dómnefndar. Gott og vel, þessar umsagnir má sjá hér neðar. Að sögn Kristínar hefur Gagarín einkum verið að taka að sér verkefni í Noregi en einnig í Kanada, Slóveníu, Finnlandi og Svíþjóð. En, hvað er margmiðlun, í stuttu máli?„Í okkar tilfelli má segja að þetta sé upplifunarhönnun, oftast gagnvirk þar sem notaðir eru fjölmargir ólíkir miðlar svo sem grafík, hreyfimyndir, hljóð og annað. Í raun allt það sem ertir skynfæri fólks. Við segjum sögur og leyfum fólki að taka þátt og læra í gegnum leik.“Tóku aldrei lán og gáfust ekki uppHversu hátt hlutfall verkefna ykkar er fyrir innlendan markað? Og, er eitthvað að aukast að Íslendingar vilji setja upp almennilegan vef og margmiðlunarsýningu?Kristín Eva. Gagarín lifði af hina ógurlegu dott-com-bólu, til dæmis með því að leita tækifæra á erlendri grundu.„Þetta er misjafnt á milli ára. Fyrir tveimur árum vorum við nær eingöngu erlendis en það er að aukast hér heima sem við tengjum við aukna ferðaþjónustu. Höfum meðal annars nýverið klárað nýja sýningu fyrir Landsvirkjun í tilefni 50 ára afmælis þeirra og þar áður gagnvirk atriði fyrir Eldheima í Vestmannaeyjum,“ segir Kristín sem tekur fram að þau séu ekki í vefverkefnum.En, hvernig fór Gagarín, eitt fárra fyrirtækja, að því að lifa af dott.kom bóluna? „Við aðlögum fókusinn, tókum aldrei lán, sóttum á erlenda markaði og gáfumst aldrei upp.“Ýmislegt spennandi á döfinniÝmis verkefni eru á teikniborðinu. Gagarín er að vinna að upplifunarefni sem verður til að markaðssetja og segja sögu allar þjóðgarða Noregs. Þá er athyglisvert verkefni sem snýr að því að fræða íbúa og ferðamenn við Miðjarðarhafið um tíma Rómverja. Þá má og nefna aðlögun lausna fyrir Mannréttindasafnið í Kanada. „Og svo ýmsum öðrum spennandi og metnaðarfullum verkefnum hér á landi.“ „Við erum fjórtán hjá Gagarín núna, leitum svo til verktaka eftir þörfum. Verkefnin geta nefnilega spannað ansi vítt svið hönnunar t.d. arkitektúr, rýmishönnunar, ljósahönnunar, hljóðhönnuðar, vöruhönnunar, grafískrar hönnunar, gagnvirkrar hönnunar, upplýsingahönnunar og tæknihönnunar ýmiskonar.“Ógleymanlegt ferðalag um heim hreindýrannaEn, aðeins nánar um verðlaunin og svo umsagnirnar sem eru ákaflega lofsamlegar. Þýsku hönnunarverðlaunin eru alþjóðleg verðlaun sem voru stofnuð af German Design Council. Keppnin er ætluð sem vettvangur til að kynna og verðlauna framúrskarandi nútímahönnun og er hönnuðum sem hafa sýnt árangur boðið til þátttöku í keppninni ár hvert. Verðlaunaafhendingin fer fram í Þýskalandi í febrúar 2016.Umsögn dómnefndar um Villihreindýrasýninguna:„Heillandi sýning í Hardangervidda þjóðgarðinum, 13 gagnvirkar stöðvar þar sem gestir geta lært nánast allt um hreindýr, þar á meðal uppruna þeirra, líffræði og félagslega hegðun. Upplýsingunum sem er miðlað eru unnar úr vísindalegum gögnum en matreiddar á einstaklega skemmtilegan og spennandi hátt. Aðlaðandi sýning, bæði hvað varðar sjónræna framsetningu og innihald, sem tekur gestinn á ógleymanlegt ferðalag í gegnum heim hreindýrsins um leið og hún vekur fólk til umhugsunar um þessa dýrmætu dýrategund sem er í útrýmingarhættu.“Dómnefnd: Prof. Mike Richter | Philipp Thesen | Prof. Eku WandUmsögn dómnefndar um Mannréttindasýninguna:Mannréttindasýningin í Kanada sem opnaði í september 2014 og er tileinkuð mannréttindamálum, stöðunni í dag, sögulegum atburðum og framtíðarhorfum. Sýningin sem hefur sterkt samfélagslegt gildi mun seint líða fólki úr minni. Gagnvirku atriðin þrjú (hönnuð af Gagarín) – sem hvert um sig er mjög áhrifaríkt –gera umfjöllun um alþjóðleg mannréttindamál að sterkri upplifun fyrir gesti og ýta undir umræðu .Dómnefnd: Michel Casertano | Dr. Angelika Nollert | Prof. Hartmut A. Raiser
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira