Komdu í veg fyrir að aðrir viti að þú hafir séð skilaboðin þeirra Bjarki Ármannsson skrifar 21. apríl 2015 21:05 Til eru einfaldar leiðir til að svindla á 'seen'-virkninni á Facebook. Vísir/Getty
Samræður milli vina á Facebook hafa breyst svo um munar með tilkomu 'seen'-virkninnar. Sú sér til þess að notendur sjá alltaf um leið hvenær hinn samræðuaðilinn hefur séð nýjustu skilaboðin frá manni. Ekki eru allir alltaf ánægðir með þessa viðbót. Virkir Facebook-notendur þekkja ónotatilfinninguna sem fylgir því að sjá að vinur manns hefur séð orðsendingu manns en ekki komið sér í að svara henni.Unread leysir vandann fyrir snjallsímanotendur.Jafnframt langar mann stundum til þess að láta eins og maður hafi ekki séð skilaboð frá einhverjum tilteknum aðila, en 'seen'-virknin kemur í veg fyrir að maður geti stundað slíkan blekkingarleik. Það eru þó til leiðir til að svindla á kerfinu og vakin er athygli á tveimur slíkum á vef breska blaðsins The Independent. Þeir sem vilja ekki að aðrir notendur viti um leið að maður hafi séð skilaboð þeirra hafa um tvennt að velja: Annars vegar viðbótina Facebook Unseen eða þá Unread. Báðar viðbæturnar leysa vandann með því að fjarlæga einfaldlega þann hluta tölvukóðans sem sér um að merkja skilaboð frá vinum með 'seen.' Facebook Unseen-viðbótin virkar í netvafranum Chrome en Unread-viðbótin er fyrir snjallsíma. Gallinn á þeirri síðarnefndu er þó að ekki er hægt að senda skilaboð með henni, aðeins skoða þau.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira