Fangar á Akureyri vilja frekar sitja inni Sveinn Arnarsson skrifar 13. ágúst 2015 06:30 Fangar á Akureyri hafa frekar viljað vera innan veggja fangelsisins þar sem þeir geta hitt fjöskyldu tvisvar í viku en fara á áfangaheimili í Reykjavík fjarri fjölskyldumeðlimum.
Dæmi eru um að fangar sem afplána dóma sína á Akureyri hafni því að ljúka afplánun utan fangelsis þar sem einungis er hægt að ljúka henni í Reykjavík. Fangar sem eigi fjölskyldur á Norðurlandi vilji frekar ljúka afplánun innan veggja fangelsisins. Formaður Afstöðu, félags fanga, segir mikilvægt að koma á úrræði á Norðurlandi svo fangar geti afplánað lok dóms utan veggja fangelsisins.Páll WinkelAðeins eitt áfangaheimili er starfrækt á landinu, áfangaheimili Verndar í Reykjavík, þar sem fangar geta lokið afplánun. Fangar af landsbyggðunum þurfa því að flytjast frá fjölskyldum sínum og vera í vinnu eða námi á höfuðborgarsvæðinu, fjarri fjölskyldum sínum. Samkvæmt lögum um fullnustu refsinga getur fangelsismálastofnun leyft fanga að ljúka afplánun utan fangelsis, stundi hann vinnu eða nám sem stofnunin hefur samþykkt og er liður í aðlögun hans að samfélaginu á ný. Úrræðið er mun ódýrara fyrir hið opinbera og því gæti fylgt því sparnaður að opna úrræði fyrir fanga á Norðurlandi. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir stofnunina ekki hafa skoðað það að opna áfangaheimili fyrir norðan því fjárskortur stofnunarinnar sé mikill. „Sem stendur er Fangelsismálastofnun að einbeita sér að því að halda sjó í rekstri og algerlega útilokað að fara í fjölgun úrræða eða vistunarstaða nema með auknu fjármagni,“ segir Páll.Guðmundur ingi Þórodsson „Það eina sem liggur fyrir er að á Akureyri er rekið 10 manna fangelsi og þar starfar frábært starfsfólk sem hefur staðið sig frábærlega í því að taka við kvenföngum til vistunar en þeir fangar voru sendir norður vegna lokunar á kvennafangelsinu í Kópavogi vegna niðurskurðar í fjárveitingum.“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, segir það vera mikilvægt að koma á áfangaheimili á Norðurlandi. „Það er hagur allra að það náist í gegn. Mýmörg dæmi eru um það að fangar hafni því að fara á áfangaheimili því þá eru þeir sendir í burtu. Á meðan við höfum ekki nægt rými til að fangar geti hafið afplánun fljótt yrði það akkur fyrir fangelsismálastofnun að geta komið mönnum á áfangaheimili til að taka inn nýja fanga,“ segir Guðmundur Ingi.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira