Neysla Omega-3 gæti hindrað geðrof Ingvar Haraldsson skrifar 13. ágúst 2015 07:00 Mikið magn Omega-3 fitusýra er í lýsi. Óttar Guðmundsson geðlæknir segist ráðleggja öllum að taka lýsi.
vísindi Neysla Omega-3 fitusýra gæti hindrað geðrof og hægt á þróun geðklofa og annarra geðsjúkdóma samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birt var á þriðjudag. Ungmenni í áhættuhóp á að þróa með sér geðklofa voru mun ólíklegri til að greinast með sjúkdóminn allt að sjö árum eftir að hafa tekið Omega-3 fitusýrur í tólf vikur. Þetta kemur fram á heilsufréttavefnum MedicalXPress þar sem vitnað er til rannsóknar vísindamanna við Háskólann í Melbourne. Niðurstöðurnar koma Óttari Guðmundssyni geðlækni ekki á óvart. „Ég er búinn að trúa á undramátt Omega-3 í áratugi,“ segir Óttar. „Ég trúi því að Omega-3 sé gott við öllu: Geðhvörfum, taugaveiklun, getuleysi, bara hverju sem er. Þess vegna drekk ég eina flösku af lýsi á viku,“ bætir Óttar við. Óttar segist hafa séð inntöku lýsis hjálpa fólki. „Og sérstaklega sjálfum mér, ég finn bara hvað ég er allur annar maður þegar ég er með lýsi,“ segir hann.óttar guðmundssonÁ MedicalXPress er bent á að vísindamenn hafi lengi vitað að einstaklingar með geðklofa mælist með lítið magn fjölómettaðra fitusýra á borð við Omega-3 og Omega-6 í frumuhimnum. Áhrif Omega-3 á geðklofa séu þó enn óþekkt. Samkvæmt fyrri rannsókn sama hóps, sem gefin var út fyrir tæpum áratug, var ályktað að neysla fitusýra gæti seinkað fyrstu einkennum geðrofs hjá áhættuhópum um allt að eitt ár. Í rannsókninni sem kom út í vikunni segir að sjö árum síðar hafi einungis tíu prósent þeirra sem tóku Omega-3 fitusýrur þróað með sér geðrof samanborið við fjörutíu prósent þeirra sem voru í samanburðarhóp sem fékk lyfleysu. Paul Amminger, sem stýrði rannsókninni, vill þó ekki ganga svo langt að fullyrða að það ætti að ráðleggja öllum þeim sem séu í áhættuhóp að taka inn Omega-3 fitusýrur til að draga úr líkum á geðsjúkdómum. Til þess þurfi fleiri rannsóknir. Úrtakið hafi verið fremur lítið, en 81 einstaklingur tók þátt í rannsókninni. Þó séu nokkrar sambærilegar rannsóknir í bígerð. Hægt verði að draga frekari ályktanir þegar niðurstöður þeirra liggi fyrir.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira