Æskuvinirnir hlaupa fyrir Tönju Kolbrúnu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 13. ágúst 2015 12:58 Ragnheiður og Andri eru hluti af hópi sem ætlar að hlaupa fyrir hina þriggja ára Tönju Kolbrúnu. Vísir/Úr einkasafni
Stór hluti vinahóps Fannars Geirs Ólafssonar og Rakelar Hannibalsdóttur ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar dóttur þeirra sem greindist með hvítblæði í mars á þessu ári. Hún heitir Tanja Kolbrún og er aðeins þriggja ára gömul. „Þetta er löng meðferð, um það bil tvö til þrjú ár og hún er náttúrulega mjög dýr,“ segir Andri Kristjánsson, einn þeirra sem hyggst hlaupa til styrktar Tönju. „En við viljum líka sýna stuðning með þessu á annan hátt, ekki bara fjárhagslegan heldur líka andlegan.“ Andri ætlar að hlaupa með kærustunni sinni Ragnheiði Vignisdóttur og saman hlaupa þau heilt maraþon eða 21 kílómetra hvort. „Við erum þó nokkuð mörg úr vinahópnum sem ætlum að hlaupa fyrir hana,“ segir Andri. Vinahópur Fannars og Rakelar er frá Selfossi og hefur þekkst síðan á grunnskólaaldri.Erfitt að fá fregnir um veikindi barnsins síns Andri segir alla jákvæða og bjartsýna á að Tanja nái bata. „Það sýna allir sínar bestu hliðar en auðvitað er þetta bara erfitt að lenda í svona aðstæðum.“Sjá einnig: Slappleiki þriggja ára stúlku reyndist hvítblæði Tanja er yngsta dóttir parsins en saman eiga þau þrjú börn. Átta vinir þeirra hófu söfnun fyrir lyfjameðferð stúlkunnar og stofnsettu Styrktarsjóð Tönju Kolbrúnar sem þau Andri og Ragnheiður hlaupa fyrir nú. Þá var söfnunin í formi opinna æfinga í KraftBrennzlunni á Selfossi en nú hefur söfnunin færst yfir í hlaupin. Níu ætla að hlaupa fyrir Tönju þegar þetta er skrifað en það eru auk Andra og Ragnheiðar þau Gústaf Lilliendahl, Alexander Jensen, Unnur Marín, Kolbrún Guðmunda, Lárus Jón Björnsson, Tinna María og Sólveig Hrönn. Foreldrar Tönju voru snortin eftir þann stuðning og hlýhug sem þau fundu í kjölfar þess að styrktarsjóðurinn var stofnsettur að sögn Andra. Fannar „Þetta eru auðvitað mikil viðbrigði fyrir hana, þrátt fyrir að hún geri sér ekki alveg grein fyrir þessu, enda bara þriggja ára. En hún er mjög hress og sterk stelpa og hefur alltaf verið. Við vitum að þetta verður erfitt, hún má ekki fara í leikskóla og getur ekki verið mikið meðal almennings, því ónæmiskerfið höndlar það ekki.“Hér er hægt að styrkja þau Ragnheiði og Andra. Hér má sjá upplýsingar um alla þá sem ætla að hlaupa fyrir Tönju Kolbrúnu.Leiðrétting:Í fyrri fyrirsögn fréttarinnar var tekið fram að hlaupið væri fyrir lyfjameðferð Tönju Kolbrúnar. Lyfjameðferðin sjálf er niðurgreidd af ríkinu og því fara fjármunirnir sem safnast ekki í hana beint heldur í kostnað sem fylgir meðferðinni og til þess að styðja við fjölskylduna fjárhagslega að öðru leyti.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Fleiri fréttir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Sjá meira