Vilja nýjan spítala á Vífilsstöðum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 22. júlí 2015 12:54
Mikill meirihluti er ósáttur við staðsetningu nýs spítala við Hringbraut, samkvæmt óformlegri könnun Samtaka um betri spítala á betri stað. Langflestir þeirra sem tóku þátt í könnuninni vilja nýjan spítala á Vífilsstöðum. Rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð tóku þátt í rafrænni könnun samtakanna. Af þeim sögðust 76 prósent þeirra vera mjög eða frekar ósáttir við staðsetningu nýs Landspítala við Hringbraut. Flestir, eða 38 prósent vilja nýjan spítala á Vífilsstöðum, næst flestir vilja sjá hann í Fossvogi eða 24 prósent og um fimmtán prósent vilja sjá hann við Elliðavog. Þó er ekki hægt að segja að könnunin gefi skýra mynd af skoðunum þjóðarinnar, þar sem hún var ekki framkvæmd af viðurkenndu könnunarfyrirtæki. Því verður ráðist í aðra könnun í næstu viku en niðurstöðum beggja þeirra verður skilað til ríkisstjórnar og borgaryfirvalda þar sem þess verður krafist að gert verði nýtt faglegt staðarval.Guðjón segir að samkvæmt útreikningum samtakanna kosti um 1,8 milljörðum minna að byggja nýjan spítala í Fossvogi og um 4,6 milljörðum minna að byggja nýjan spítala frá grunni við Elliðavog.vísir„Við erum búin að skila skýrslu með útreikningum sem hafa verið yfirfærðir af KPMG um hagkvæmni mismunandi staðsetninga. Það kemur í ljós að ef núvirt hagræði miðað við Hringbrautina, að núvirkt hagræði af því að byggja í Fossvoginum eru um það bil 63 milljarðar og núvirt hagræði af því að byggja á „Besta stað“ er 102 milljarðar króna ,” segir Guðjón Sigurbjartsson, framkvæmdastjóri Samtaka um betri spítala á betri stað. Hann segir að samkvæmt útreikningum samtakanna kosti um 1,8 milljörðum minna að byggja nýjan spítala í Fossvogi og um 4,6 milljörðum minna að byggja nýjan spítala frá grunni við Elliðavog, þegar söluverðmæti eigna við Hringbraut, Fossvog og víðar hefur verið dregið frá. Þá sýni útreikningar samtakanna að fjárfesting í umferðarmannvirkjum yrði 15 milljörðum lægri við Elliðavog. „Þarna er búið að taka saman í eina tölu allan framtíðar ávinninginn, því á hverju einasta ári verður mikill ávinningur af því að hafa flutt spítalann. Það er vegna þess að á hverjum sólarhring er áætlað að það komi um níu þúsund ferðir að spítalanum þegar búið er að sameina hann á einn stað.” Guðjón segir úttekt á staðarvali á spítalanum við Hringbraut úrelta. Það sé meðal annars vegna aukins ferðamannastraums. „Þessi staðarvöl sem hafa verið í gangi og voru framkvæmd fyrir nokkrum árum síðan eru úrelt. Það er búið að breytast svo mikið varðandi til dæmis miðborgina út af ferðamannastraum og öðru slíku og byggðin á höfuðborgarsvæðinu þróast stöðugt í átt til austurs og svo suður með ströndinni í átt að Hafnarfirði. Þannig að þetta er allt saman orðið úrelt og það þarf að vinna þetta upp á nýtt.”Spennandi niðurstöður úr FB könnun BSBS. Frábær þátttaka á innan við sólarhring. Af meira en 2200 svarendum sögðust 76% ...Posted by Samtök um Betri spítala á betri stað on Tuesday, 21 July 2015
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fleiri fréttir Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Sjá meira