Innlent

Lá við stórslysi þegar flutningabíl var ekið á hæðarslá Hvalfjarðarganga

Birgir Olgeirsson skrifar
Sem betur varð ekki stórslys.
Sem betur varð ekki stórslys. Vísir/Youtube
Gámur á flutningabíl lenti harkalega á hæðarslá yfir suðurmunna Hvalfjarðarganga að kvöldi fimmtudagsins 16. júlí. Spölur ehf. hefur birt myndband af atvikinu en þar sést hvernig lá nærri við stórslysi en tvær af þremur stálkeðjum héldu 600 kílóa þungum stálbitanum uppi eftir áreksturinn. Farmur bílsins var vel yfir löglegri hæð, sem er 4,2 metrar.

Flutningabíllinn var á suðurleið þegar hann lenti af miklu afli á hæðarslánni þvert yfir akbrautum við suðurmunna ganganna, stálbita sem er í yfir 4,2 metra hæð. Bitinn var skrúfaður fastur með stálboltum í sæti beggja vegna og hékk auk þess í þremur digrum stálkeðjum. Þessum bita eða hæðarslá er ætlað marka löglega hámarkshæð farms og verja jafnframt allan þann raf- og fjarskiptabúnað sem er í lofti ganganna.

Við höggið slitnuðu boltar beggja vegna, bitinn losnaði og sleit eina af öryggiskeðjunum, en til þess þurfti margra tonna átak. Bitinn sveiflaðist við höggið upp í kapalkerfi ganganna, rauf þar straum og sló niður eftirlitsmyndavél sem sést skoppa eftir malbikinu augnabliki áður en næsta bíl ber þar að.

„Til allrar hamingju slitnaði aðeins ein öryggiskeðjan, augljóslega þarf ekki að hafa mörg orð um hvað hefði getað gerst þarna ef fleiri keðjur hefðu gefið sig og bitinn fallið niður, allur eða annar endi hans,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu um málið.

Spölur ehf. ákvað að birta upptökuna úr eftirlitskerfinu til að sýna mögulegar afleiðingar þess ef bílstjórar og farmflytjendur gæta þess ekki að hæð á farmi í flutningum sé innan ramma laga og reglna. Þá eru aðrir bílstjórar beðnir að gæta þess í öryggisskyni að hafa gott bil framan við sig þegar þeir fara á eftir flutningabílum undir brýr í samgöngukerfinu eða hæðarslár í Hvalfjarðargöngum.


Tengdar fréttir

„Bitarnir eru jafn háir“

Öryggisfulltrúi Spalar ehf. segist ekki vita hvers vegna bíllinn rakst einungis í hæðarslána við suðurmunna Hvalfjarðarganga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×