Tómur bjórkútur sem vopn, kjálkabrot og hnefahögg Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. mars 2015 13:58 Árásirnar áttu sér meðal annars stað inni á skemmtistöðunum Austur og Glaumbar. Vísir/Pjetur
Aðalmeðferð í málum fjögurra manna sem ákærðir eru fyrir aðild að sex líkamsárásum hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tvær árásanna áttu sér stað inni á skemmtistaðnum Austur sama kvöld í desember 2013. Sami maður er ákærður í báðum málunum en í fyrra tilfellinu á hann að hafa slegið mann ítrekað með hnefahöggum í höfuðið. Félagi mannsins er einnig ákærður fyrir aðild að árásinni en sá á að hafa slegið brotaþola ítrekað í höfuðið með flösku og krepptum hnefa. Maðurinn sem ráðist var á hlaut mar í andliti og sjö skurði í höfuð, að því er fram kemur í ákæru, en meintir árásarmenn könnuðust ekki við að hafa lent í átökum inni á staðnum og neituðu sök í málinu fyrir dómi í dag. Seinni árásin á Austur átti sér stað í anddyri staðarins. Þar eiga tveir menn að hafa í sameiningu ráðist á þann þriðja. Annar mannanna á að hafa slegið hann ítrekað í höfuðið með flösku og þá hann að hafa veitt honum ítrekuð hnefahögg. Brotaþoli hlaut meðal annars skurð hægra megin í andliti og í vör en líkt og í fyrri árásinni á Austur neituðu meintir árásarmenn sök fyrir dómi og kváðust ekki kannast við nein átök.Sakaður um að hafa slegið dyravörð með glerflösku og tómum bjórkút Mennirnir tveir sem ákærðir eru í fyrri árásinni á Austur eru einnig ákærðir fyrir sitthvora líkamsárásina á skemmtistaðnum Glaumbar í júlí 2013. Eiga þeir að hafa ráðist á sitthvorn dyravörðinn en neituðu báðir sök fyrir dómi í dag. Annar maðurinn á að hafa slegið dyravörð með glerflösku í hnakka auk þess sem honum er gefið að sök að hafa slegið hann í höfuð og búk með tómum bjórkút. Dyravörðurinn hlaut meðal annars opið sár í hnakka svo sauma þurfti sex spor. Hinum manninum er gefið að sök að hafa slegið og skallað annan dyravörð með þeim afleiðingum að hann marðist meðal annars í andliti. Þá er þriðji maðurinn, sem einnig er ákærður í seinni árásinni á Austur, sakaður um að hafa ráðist á mann fyrir utan skemmtistaðinn Park í desember 2013. Á hann að hafa slegið brotaþola hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að hann féll í götuna. Síðan á ákærði að hafa stappað á eða sparkað í höfuð mannsins með þeim afleiðingum að hann meðal annars kjálkabrotnaði.Tveir mannanna eru ákærðir fyrir að ráðast á lögreglumann en neita sök í málinu.Vísir/Kolbeinn TumiÁkærðir fyrir að ráðast á lögreglumann Maðurinn sem ákærður er fyrir árásina fyrir utan Park er einnig ákærður fyrir aðild að sjöttu árásinni. Þá á að hann hafa ráðist á lögreglumann fyrir utan heimili hans í Reykjavík í nóvember 2013, ásamt félaga sínum sem einnig er ákærður í málinu. Á sá maður að hafa kýlt lögreglumanninn í andlitið með þeim afleiðingum að hann féll í jörðina. Eiga mennirnir tveir síðan að hafa sparkað ítrekað í lögreglumanninn þar sem hann lá í jörðinni. Tildrög þess að mennirnir tveir fóru heim til lögreglumannsins voru þau að annar þeirra ætlaði að ræða við félaga sinn sem hann taldi að ætti heima í sama húsi. Maðurinn sagðist fyrir dómi í dag hafa kastað lausamöl í glugga hjá félaga sínum. Hann hafi hins vegar farið íbúðavillt og kastað í glugga á íbúð lögreglumannsins. Maðurinn sagði að lögreglumaðurinn hafi þá komið út og verið mjög „agressívur.“ Hann hafi því hlaupið í burtu en þá hafi lögreglumaðurinn ráðist á félaga hans. Maðurinn sagðist ekki hafa komið nálægt neinum átökum og neitaði sök og hinn maðurinn einnig, en viðurkenndi þó að hafa lent í átökum við lögreglumanninn.Vildi halda mönnunum á staðnum þar til lögregla kæmi Hann kvaðst ef til vill hafa kýlt hann í andlitið en það hafi ekki verið viljaverk. Hann hafi verið að reyna að losa sig þar sem lögreglumaðurinn hélt í úlpuna hans og hann sveiflaði hendinni þannig til að hún gæti hafa farið í andlit mannsins. Þeir hafi svo báðir dottið í götuna og verið í slagsmálum þar en maðurinn sagðist ekki hafa sparkað í lögreglumanninn þar sem lögreglumaðurinn hélt honum niðri og hann gat því ekkert gert. Fyrir dómi kannaðist lögreglumaðurinn ekki við að sparkað hafi verið í hann en greindi skilmerkilega frá því að hafa lent í átökum við annan mannanna, þó ekki eins og sá lýsti fyrir dómi. Lögreglumaðurinn hafði hringt á 112 áður en hann fór út að tala við mennina tvo. Hann hafi viljað halda þeim á staðnum en þeir ætlað að flýja. Annar mannanna komst undan en hann náði að stoppa hinn sem kýldi hann þá í andlitið. Lögreglumaðurinn datt þá í jörðina og ákærði lent ofan á honum en hann kvaðst hafa náð að halda honum föstum. Maðurinn sem hafði hlaupið í burtu kom svo aftur stuttu síðar og reyndi að sparka í lögreglumanninn en tókst það ekki, að því er brotaþoli bar við. Mennirnir hafi síðan hlaupið í burtu og náðu þannig að komast undan lögreglunni sem kom stuttu síðar á svæðið. Ekki er búist við því að aðalmeðferð ljúki í dag. Fjöldi vitna þarf að koma fyrir dóminn auk þess sem tveir brotaþola eru erlendis.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira