Mótmæla lokun Bjarma Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. janúar 2015 16:39 vísir/getty
Fulltrúar Samfylkingar og VG í fræðsluráði Hafnarfjarðarbæjar mótmæla ákvörðun meirihluta Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks að loka eina sérhæfða ungbarnaleikskólanum í sveitarfélaginu. Telja þeir að með því sé stigið skref aftur á bak í málefnum leikskólastigsins og að vegið sé að grunnstoðum þess, þvert á vilja foreldra. Þetta kemur fram í fundargerð fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar. Í fundargerðinni segir að með þessum aðgerðum sé ljóst að ekki verði forgangsraðað í þágu leikskólastigsins í Hafnarfirði. Leikskólinn hafi verið leiðandi á sínu sviði og einn fárra leikskóla sem hafi frá upphafi uppfyllt lögbundin viðmið um lágmarksfjölda fagmenntaðra starfsmanna. „Ef Hafnarfjarðarbær ætlar að vera bær sem mætir þörfum barnafjölskyldna, sem stenst kröfur nútímans og samanburð við þau sveitarfélög sem hvað mesta framsýni hafas ýnt í þjónustu við börn á leikskólaaldri, þá eru þessar aðgerðir svo sannarlega ekki skref í þá átt,“ segir orðrétt í fundargerðinni. Tillaga fræðsluráðs um að segja upp samningi við rekstur ungbarnaleikskólans í Hafnarfirði, Bjarma, við Bjargir ehf. var í gær samþykkt í ljósi þess að börnum á leikskólaaldri í Hafnarfirði muni fækka samkvæmt spám um íbúaþróun. Samningunum var því sagt upp frá og með 31.janúar 2015 með sex mánaða fyrirvara í samræmi við uppsagnarákvæði samningsins. Bæjarstjórn staðfesti síðan uppsögnina. „Við þessa ákvörðun er litið til hagkvæmni rekstrareininga í leikskólum í bæjarfélaginu, en dvalargildið á Bjarma er 17-23% dýrara en á öðrum þjónustureknum leikskólum bæjarins. Ekki hefur heldur alltaf verið hægt að fylla í pláss leikskólans þótt bærinn þurfi, samkvæmt þjónustusamningi, að greiða fyrir allt að 24 börn í átta tíma á dag,“ segir í bókuninni en hana má lesa hér.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira