Innlent

80 milljónir í landsmótssvæðið á Hólum

Sveinn Arnarsson skrifar
Landsmót er haldið annað hvert ár og sækja nærri tíu þúsund manns mótið. Frá mótinu á Gaddsstaðaflötum á Hellu í fyrra.
Landsmót er haldið annað hvert ár og sækja nærri tíu þúsund manns mótið. Frá mótinu á Gaddsstaðaflötum á Hellu í fyrra. mynd/bjarni Þór Sigurðsson
Framkvæmdir við Landsmót hestamanna árið 2016 eru í fullum gangi á Hólum í Hjaltadal. Unnið er að gerð keppnisvalla og aðstöðu fyrir áhorfendur. Áætlað er að kostnaður við verkið nú í sumar verði 82,7 milljónir króna og greiðist að hálfu úr ríkissjóði og að hálfu af sveitarfélaginu Skagafirði.

„Það eru fjölmargir málaflokkar þar sem ákveðin kostnaðarskipting á sér stað milli ríkis og sveitarfélaga. Við höfum tekið þátt í kostnaði við uppbyggingu fjölbrautaskólans, uppbyggingu endurhæfingarhúss við Heilbrigðisstofnunina, uppbyggingu Háskólans á Hólum, landsmót á vegum UMFÍ og svo má lengi telja. Þessi framkvæmd við Háskólann á Hólum í Hjaltadal er því ekki að neinu leyti frábrugðin öðrum verkefnum til uppbyggingar á innviðum samfélagsins,“ segir Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Verkfræðistofan Stoð ehf. gerði kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdir á svæðinu í maí síðastliðnum sem hljóðaði upp á um 68 milljónir króna og opnað var fyrir tilboð í verkið, sem snýr að lagningu valla og gerð áhorfendabrekku svo eitthvað sé nefnt. Þrjú tilboð bárust sem öll voru langt yfir kostnaðaráætlun, eða á bilinu 111 til 130 milljónir króna.

Öllum tilboðum var hafnað en farið var í að semja við lægstbjóðanda.

Erla Björk Örnólfsdóttir
„Þær framkvæmdir sem nú eiga sér stað á Hólum tengjast uppbyggingu aðstöðu vegna Landsmóts hestamanna árið 2016, sem jafnframt mun nýtast sem kennsluaðstaða fyrir Háskólann á Hólum. Skólinn fékk fjörutíu milljónir sem eyrnamerktar voru til framkvæmda til að bæta aðstöðu til kennslu í hestafræðideild. Háskólinn á Hólum tekur þátt í að móta umgjörð fyrir Landsmót hestamanna með því að veita aðgang að glæsilegri aðstöðu skólans og landrými, en kemur ekki að fjármögnun landsmóts,“ segir Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum.

Þann 1. desember síðastliðinn komu inn í fjárlögin fjörutíu milljónir til að bæta útikennslusvæði Hólaskóla. Daginn eftir var tekin ákvörðun á stjórnarfundi Landssambands hestamannafélaga um að færa landsmótið frá Vindheimamelum í Skagafirði að Hólum í Hjaltadal. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×