Eden rís úr öskunni á Tívolílóð í Hveragerði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. ágúst 2015 07:30 Stórbruni batt enda á sögu Eden. Nú vilja nýir aðilar taka upp þráðinn að nýju. Fréttablaðið/Pjetur
Bæjarráð Hveragerðis hefur samþykkt að veita félagi sem hyggst byggja söluskála undir nafni Eden fimm mánaða forgang að svokallaðri Tívolílóð. Gróðrarstöðin og veitingaskálinn Eden brann til kaldra kola fyrir fjórum árum, þann 22. júlí 2011, og lauk þar langri sögu þessa vinsæla söluskála. Að því er fram kemur í erindi til bæjaryfirvalda í Hveragerði er nú hafinn undirbúningur að uppbyggingu og rekstri fjölnota húss í Hveragerði undir merkjum Eden Geothermal Centre. Rekstrarfélagið Eden ehf. hyggist standa fyrir rekstri á fjölnota byggingu í Hveragerði og hafi í því sambandi undirritað viljayfirlýsingu um byggingu og leigu á slíku húsi. Byggingin verði allt að 2.500 fermetrar, þar af átta hundruð fermetra „tropical“ gróðurhús. Segir í bréfinu að miðað sé við að húsið verði tilbúið til opnunar í apríl 2017. „Reiknað er með að í húsinu verði unnin allt að 100 ársverk,“ segir um umfang rekstursins. Þá segir að forsenda fyrir því að verkefnið verði að veruleika sé að Hveragerðisbær veiti fimm mánaða forkaupsrétt á Tívolíreitnum. „Jafnframt er óskað eftir því að félagið fá leyfi Hveragerðisbæjar til að nota nafnið Eden á starfsemina enda verði starfsemin í samræmi við starfsemi sem áður var í Eden,“ segir í erindinu. Bæjarráðið segir þessi áform samræmast vel þeim hugmyndum sem margir bæjarbúar og bæjarstjórn hafi haft um enduruppbyggingu Eden í bæjarfélaginu. Undirbúningshópnum sé veittur forgangur að Tívolíreitnum í fimm mánuði. „Verði hugmyndir þeirra að veruleika í þeirri mynd sem þær eru hér settar fram er bæjarráð tilbúið til að veita heimild til notkunar á Eden nafninu fyrir starfsemina,“ segir bæjarráðið í samþykkt sinni.
Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira