Tónlist

Alltaf verið markmið að reyna á mörkin

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Önnur breiðskífa Agent Fresco kemur út þann 7. ágúst og í dag verður myndband við lagið Wait For Me frumsýnt á Vísi.
Önnur breiðskífa Agent Fresco kemur út þann 7. ágúst og í dag verður myndband við lagið Wait For Me frumsýnt á Vísi. Vísir/AndriMarinó
Í dag kemur út myndband við lagið Wait For Me af plötunni Destrier, annarri breiðskífu hljómsveitarinnar Agent Fresco. Fyrir söngvara sveitarinnar, Arnór Dan Arnarson, er þetta mikilvægasta lagið á plötunni, samið til fjölskyldu hans og myndbandið er búið til úr gömlum myndbrotum af fjölskyldunni sem erfitt var að fara í gegnum.

Bíðið eftir mér

Hugmyndin að laginu kviknaði þegar Arnór var á tónleikaferðalagi með Ólafi Arnalds og bað um að fá að tileinka lag á tónleikunum.

„Ég byrjaði að tala dönsku, var með einhvern brandara og svo komu bara tilfinningar sem ég var búinn að halda niðri og ég fór bara að gráta upp á sviði,” segir Arnór og hlær. „Ég vildi svo mikið tala um tímann og hvað hann er fyndið hugtak. Ég er búinn að búa á Íslandi í átta ár og þegar maður kemur til baka fattar maður að tíminn stóð ekki í stað og hvað það er margt sem maður missti af.“

Fjölskylda Arnórs er búsett í Danmörku og á meðan hann var á Íslandi höfðu systur hans eignast börn og góður vinur hans misst foreldra sína. Það sem sat í honum var að geta ekki verið þátttakandi og sýna þeim sem honum þótti vænt um stuðning.

Arnór segir að í kjölfar þessarar upplifunar hafi þær tilfinningar sem hann vildi setja í lagið komið skýrt fram. „Tíminn hefur ekki staðið í stað, ég veit ég mun fara aftur til baka til þeirra, ég veit bara ekki hvenær. Bara svona, bíðið eftir mér.“

Mikilvægasta lagið á plötunni

Myndbandið við lagið skipti Arnór miklu máli þar sem lagið var honum dýrmætt og vildi hann að myndbandið endurspeglaði það. „Fyrir mér er þetta mikilvægasta lagið á plötunni. Ég er mega stoltur af hinum lögunum auðvitað en þetta er bara fallegasta lagið og ég veit að það er um fjölskylduna mína og hún er mér allt.“

Eftir leit að einhverjum til þess að gera myndbandið og hugmyndavinnu um hvernig myndbandið ætti að vera gert fann Arnór loksins leiðina til þess að gera það á þann hátt sem hann vildi. Hann ákvað að nota fjölskyldumyndefni sem móðir hans hafði bjargað frá VHS-spólum og yfir á stafrænt snið en myndefnið eru persónulegar upptökur af móður hans, systrum og föður, sem lést árið 2006.

„Þá sá ég tækifæri til þess að taka þessa DVD-diska sem mamma bjargaði frá VHS þegar pabbi dó og fara loksins í gegnum þá. Ég var ekki enn þá búinn að því, það er bara erfitt, sem er glatað af því þetta er falleg gjöf og ég er ótrúlega þakklátur fyrir hana. Það var enn þá erfitt þó að það væru níu ár frá því pabbi dó.”

Við gerð myndbandsins naut Arnór aðstoðar Gísla Þórs Brynjólfssonar og Kára Jóhannssonar við að klippa og vinna myndefnið og er Arnór afar ánægður með myndbandið.

„Fyrir okkur er þetta ótrúlega skemmtilegt en ég held að ég hafi náð að klippa þetta þannig að það sé áhugavert og með takti. Myndbandið er sett upp krónólógískt og segir frá því þegar fjölskyldan verður til. Það er alltaf nýtt líf að birtast, til dæmis sónarmyndir. Þannig að þetta hefði getað verið bara gjöf til fjölskyldunnar en úr varð myndband.“



Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 2008 og eru hljómsveitarmeðlimir þeir Þórarinn Guðnason, Arnór Dan, Hrafnkell Örn Guðjónsson og Vignir Rafn Hilmarsson.mynd/MarinoThorlacius
Færir út mörkin 

„Það hefur alltaf verið markmiðið með Agent Fresco að færa út mörkin fyrir mig tilfinningalega og auðvitað að leika mér eins mikið og ég get með röddina, fara aðeins hærra og gera aðeins meira rugl og öskra aðeins meira. Og auðvitað fyrir strákana líka að leika sér og gera eitthvað sem er einfalt og blanda við eitthvað ótrúlega flókið og púsla því saman.“

Arnóri er mikilvægt að vera einlægur í tónlistarsköpun sinni. „Ég kann ekki annað en að vera persónulegur. Það gerðist snemma þegar ég var í hljómsveit með bestu vinum mínum í Danmörku, ég byrjaði þrettán ára að leika mér í tónlist og þá var maður alltaf að búa til sögur og mér finnst það gaman og allt það en þegar Agent Fresco byrjaði þá var ég bara kominn á það stig að ég var að tala um eitthvað sem var persónulegt, það er bara miklu meiri vigt í því.“

Minn stríðshestur

Langan tíma tók að gera plötuna og segir Arnór þann tíma hafa verið erfiðan og jafnvel erfiðari en að vinna plötuna A Long Time Listening, sem kom út árið 2010, en textarnir fjalla um andlát föður hans.

Á Destrier vann hann að því að túlka reiðina og kvíðann sem vaknaði við líkamsárás sem hann varð fyrir árið 2012. 

„Líkamsárásin var byrjunarpunktur, ég breytti öllu konseptinu. Ég var svo reiður og mig langaði til þess að nýta það,“ segir hann og bætir við: „Mér fannst svona hundrað sinnum erfiðara að klára þessa plötu, þetta var neikvæður staður sem ég var á. Þá ætlaði ég að túlka það og það var miklu erfiðara en ég bjóst við.“

Eftir að hafa endurskoðað plötuna ákvað Arnór að nota þær tilfinningarnar sem kviknuðu eftir líkamsárásina, túlka reiðina og búa til sögu og að hans sögn kom ekkert annað til greina. „Mér leið bara eins og það væri ótrúlega falskt ef ég væri að gera eitthvað annað, ég vildi gera ótrúlega jákvæða plötu en það fór auðvitað bara til helvítis,“ segir hann og hlær.

Lögin samdi Arnór í samstarfi við hina meðlimi hljómsveitarinnar, þá Þórarin Guðnason, Vigni Rafn Hilmarsson og Hrafnkel Örn Guðjónsson. Hugmyndin var að byrja á því að byggja eitthvað upp sem síðar myndi deyja hægt og rólega út, líkt og reiðin og kvíðinn, og er nafn plötunnar vísun í það.

„Það er þessi Destrier sem er enska heitið yfir stríðshest. Platan er minn stríðshestur.“

Vill tala um tabú

Arnór er ekki hræddur við það að vera hreinskilinn og vill tala opinskátt um hluti sem margir gætu túlkað sem tabú.

„Ég vil tala um hluti sem eru ekki þægilegir, mér líður eins og ég sé latur ef ég geri það ekki,“ segir hann og vísar þá til hluta á borð við dauðann og kvíða. „Ef það er óþægilegt að tala um eitthvað er það oftast vegna þess að það er ekki búið að tala nógu mikið um það.“

Kvíðinn sem hann glímdi við í kjölfar líkamsárásarinnar hafði ekki bara andleg áhrif heldur einnig líkamleg.

„Ég missti röddina mína stanslaust, svaf lítið og vissi ekkert hvað var í gangi. Þá kom bara í ljós að þetta var allt andlegt,“ segir Arnór og undirstrikar að hann vilji vekja athygli á hvað andleg líðan geti haft mikil áhrif á líkamann. 

Nú er ný plata að koma út og við taka tónleikar, meðal annars tónleikaferð um Evrópu í nóvember og desember, og er Arnór spenntur fyrir hvernig viðtökur Destrier mun hljóta. „Ég hlakka til að komast að því hvernig hún hljómar í eyrum þeirra sem hafa ekki verið að búa hana til í þrjú ár,“ segir hann að síðustu glaður í bragði.

Myndbandið við Wait For Me verður frumsýnt á Vísi klukkan 14.00 í dag.


Tengdar fréttir

Þurfum að berjast fyrir réttlæti

Arnór Dan Arnarson, tónlistarmaður og söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco, varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyrir tveimur árum.

Agent Fresco landar plötusamningi ytra

Hljómsveitin Agent Fresco hefur skrifuð undir plötusamning við þýskt útgáfufyrirtæki. Um er að ræða samning upp á þrjár plötur en ný plata er væntanleg í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×