Segir endurútreikninga TR koma illa niður á öryrkjum Ingvar Haraldsson skrifar 24. júlí 2015 07:00 Halldór segir að breyta þurfi lögum til að einfalda almannatryggingarkerfið. vísir/vilhelm „
Þetta er högg fyrir fólk sem hefur litlar framfærslutekjur,“ segir Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, um árlega endurútreiknga sem Tryggingastofnun sendi frá sér í vikunni. Tryggingastofnun greiddi 42 prósentum öryrkja og ellilífeyrisþega of háar bætur á síðasta ári og fer nú fram á að fá ofgreiðsluna endurgreidda. Þá greiddi Tryggingastofnun 45 prósentum öryrkja og ellilífeyrisþega of lágar bætur. Alls skulda 3.319 ellilífeyrisþegar og 2.675 örorkulífeyrisþegar Tryggingastofnun yfir 100 þúsund krónur. Þá eiga 2.717 ellilífeyrisþegar og 3.832 örorkulífeyrisþegar yfir 100 þúsund króna inneign hjá Tryggingastofnun.Halldór Sævar Guðbergsson„Flestir örorkuþegar eru að fá 170 til 190 þúsund krónur á mánuði greiddar frá Tryggingastofnun. Það segir sig sjálft ef greiða þarf 100 þúsund krónur eða meira til baka þá kemur það hressilega niður á heimilisbókhaldi hjá fólki,“ segir Halldór. Þá bætir Halldór við að það komi einnig illa við fólk að hafa fengið vangreiddan lífeyri. „Það er alveg sama hvort það er of- eða vangreiðsla. Það er slæmt að það komi svona eftir á. Fólk þarf á þessum aurum sem það er að fá til baka frá Tryggingastofnun að halda fyrr á árinu,“ segir hann. Halldór segir kerfið flókið og að erfitt geti verið fyrir fólk að átta sig á því hvort það hafa fengið van- eða ofgreitt. Það eigi sérstaklega við þá sem nýkomnir séu á örorku. „Það er eitt frítekjumark fyrir fjármagnstekjur, annað fyrir lífeyristekjur og þriðja fyrir atvinnutekjur,“ segir Halldór. Best færi á því ef kerfið yrði einfaldað og dregið yrði úr skerðingum. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins segir Tryggingastofnun að það sé á ábyrgð lífeyrisþega sjálfra. Hins vegar geti verið erfitt fyrir þá að áætla fjármagnstekjur nákvæmlega. Þá sé fólk í auknum mæli að vinna tímabundna vinnu auk þess að eingreiðslur frá lífeyrissjóðum séu algengari eftir að skylt varð að sækja um hjá lífeyrissjóðum áður en sótt er um hjá Tryggingastofnun. Þá sé algengara að fólk leigi húsnæði. Halldór segir þrátt fyrir allt ekki við Tryggingastofnun að sakast. Stofnunin sé að framfylgja lögum sem sett hafi verið af stjórnmálamönnum. Það sé þeirra að breyta kerfinu.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira