Biðlistar á öldrunarheimilum á Akureyri hafa aldrei verið lengri Sveinn Arnarsson skrifar 4. júlí 2015 07:00 Vegna sívaxandi álags á heimahjúkrun og langra biðlista eftir hjúkrunarrýmum liggja aldraðir á bráðadeildum Sjúkrahússins á Akureyri.
Grafalvarlegt ástand er komið upp í þjónustu við aldraða á Akureyri. Álag á heimahjúkrun og langir biðlistar eftir hjúkrunarrýmum öldrunarheimila gera það að verkum að aldraðir liggja inni á bráðadeildum Sjúkrahússins á Akureyri.Þóra Ester Bogadóttir Forstöðuhjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri.Útskriftarteymi sjúkrahússins á Akureyri kallaði til fundar fulltrúa frá heimahjúkrun heilsugæslu Akureyrar, hjúkrunarheimilinu Hlíð og bráðadeildum sjúkrahússins vegna ástandsins. Í framhaldinu var ákveðið að senda ályktun til Sjúkrahússins á Akureyri, velferðarráðs Akureyrarbæjar, heilbrigðisráðherra og Embættis landlæknis. Í ályktuninni er bent á brýna þörf á auknum fjárframlögum til heimahjúkrunar og heimaþjónustu til þess að koma til móts við þá auknu þjónustu sem inna þarf af hendi. Þóra Ester Bogadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir aldraða liggja á sjúkrahúsinu sem allajafna ættu að vera farnir heim til sín. Ástæða þess sé erfið staða heimahjúkrunar á Akureyri. „Það er misjafnt frá degi til dags hversu margir það eru, en á lyflækningadeild og skurðlækningadeild eru alla jafna aldraðir einstaklingar sem liggja hjá okkur,“ segir Þóra Ester. „Álagið á heimahjúkrun er slíkt að það er erfitt að bæta við nýjum skjólstæðingum. Einnig erum við stundum að útskrifa þyngri einstaklinga sem þurfa mikla umönnun heima fyrir og það getur verið mjög erfitt fyrir heimahjúkrun að fá þannig einstaklinga til sín.“ Biðlisti í hjúkrunarrými á öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri hefur ekki verið lengri í áraraðir.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira