Yfirvinnan nær eins allt frá árinu 2010 Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 1. júlí 2015 07:00 Yfirvinna hjúkrunarfræðinga er um tvö til fjögur prósent af heildarviðveru. vísir/þorkell „
Flestir eru í stóru stöðuhlutfalli, eða 80 til 90 prósent, og yfirvinnan er mjög lítið hlutfall af laununum, um þrjú til fjögur prósent,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. „Staðan er ekki þannig að fólk er í lítilli stöðuprósentu til að taka aukavaktir á móti.“ Yfirvinna var um tvö til fjögur prósent af heildarviðveru hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum á tímabilinu 2010 til 2014. Fjölgun yfirvinnutíma er varla teljandi á tímabilinu en þó er örlítil aukning. „Yfirvinnuprósenta er lág en hefur aukist eitthvað undanfarin ár og hefur aukist með auknum bráðleika sjúklinga sem skapar aukið álag,“ segir Páll.Páll MatthíassonFréttablaðið greindi frá því í gær að flestir hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum vinna í eða undir 90 prósenta vinnu. Páll segir mikið álag að vera í fullri vinnu á spítalanum og að það henti ekki öllum. Hlutastarf henti mörgum starfsmönnum en einnig spítalanum. „Það hentar spítalanum ágætlega að hafa fólk ekki kannski alveg hundrað prósent. Við þurfum vaktir til dekka allan sólarhringinn og það hentar í sjálfu sér að hafa fólk í einhverjum brotum til að raða saman. Og það er ákveðin þörf fyrir sveigjanleika.“ Páll segir svokallaða breytilega yfirvinnu vegna óvæntra útkalla skýra stóran hluta yfirvinnu á spítalanum en hún er einnig ein ástæða þess að spítalinn fari yfir á fjárlögum. „Það tengist oft álagi sem óbeint tengist mönnun, sem ekki er eins góð og hún þyrfti að vera. Tökum sem dæmi á vökudeildinni var gífurlegt álag allt síðasta ár og þar er takmarkaður fjöldi hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra sem hefur sérhæfða menntun til að sinna störfum á vökudeild. Og þegar álagið hélt áfram á sumarleyfistímum þurfti að kalla út fólk og kalla fólk úr sumarleyfum einfaldlega til að bjarga mannslífum.“ Páll segir að til að bæta ástandið á spítalanum þurfi mun betri mönnun í sérhæfð störf. „Okkur hefur sýnst að það vanti, ef við ætlum að manna eins og við viljum á öllum deildum, 60 til 70 hjúkrunarfræðinga í viðbót. Við þurfum að manna betur en við sjáum fram á skort innan ákveðinna fagstétta á næstu árum.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira