Uppsagnir á aukafundi bæjarstjórnar Sveinn Arnarsson skrifar 29. júní 2015 07:00 Hafnarstjóra og sviðsstjóra skipulags og bygginga verður sagt upp í Hafnarfirði og bæjarstjórinn mótar reglur um samskipti kjörinna bæjarfulltrúa. Fréttablaðið/Daníel
Sveitarstjórnarmál Hafnarstjóra og sviðsstjóra skipulags og bygginga verður sagt upp störfum nái tillaga meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fram að ganga. Boðað var fyrir helgi til auka bæjarstjórnarfundar til að ræða breytingar á stjórnskipulagi Hafnarfjarðar. Samhliða stendur til að gefa bæjarstjóra sveitarfélagsins vald til að segja upp því fólki sem þurfi til að ná fram hagræðingu í rekstri.Fundurinn hefst klukkan 9:15 og verður í beinni útsendingu á Vísi. „Þetta eru svo geggjuð vinnubrögð að það varla hægt að hafa um þau nógu sterk orð. Með því að halda málinu algerlega leyndu og koma í veg fyrir upplýsta umræðu er í raun verið að afnema lýðræðið í bænum. Án eðlilegrar kynningar og skoðanaskipta er útilokað að taka þetta fyrir,“ segir Sverrir Garðarsson, sitjandi bæjarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Hafnarfirði. Lagt er til í nýju stjórnskipulagi að verkefni íþrótta- og æskulýðsmála verði flutt til sem og verkefni skipulags og bygginga. Einnig er lagt til að stjórn Hafnarfjarðarhafnar verði færð undir verksvið bæjarstjóra.Þá leggur meirihlutinn til að bæjarstjóra verði falið að móta reglur um samskipti bæjarfulltrúa við starfsmenn bæjarins. Í tillögu meirihlutans segir að ljóst sé að skipulagsbreytingum þessum fylgi tilfærslur og breytingar á mannahaldi. „Markmiðið skal vera að breyttar áherslur í rekstri skili aukinni framlegð. Bæjarstjóra er falið að framkvæma þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að ná fram þeirri virkni sem nýtt stjórnskipulag krefst,“ segir í tillögunni. Í síðustu viku var samþykkt tveggja mánaða sumarfrí í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Á þeim fundi fór Haraldur L. Haraldsson einnig yfir fjárhag bæjarins en þar kom fram að ítrekað hafi verið tekið lán fyrir afborgunum eldri lána síðustu tólf ár. Sverrir vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar. „Á bæjarstjórnarfundi fyrir örfáum dögum kom fram að meirihlutinn vildi ekki að bæjarstjórn kæmi saman fyrr en í september. En nú dettur þeim í hug að skjóta á sérstökum neyðarfundi til að breyta sjálfri stjórnskipan bæjarins með aðeins tveggja sólarhringa fyrirvara. Þetta er svo galið að það tekur engu tali. Svona er ekki hægt að stjórna neinu bæjarfélagi. Það hljóta allir að sjá, hvar í flokki sem þeir standa.“
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Sjá meira