„Bara flott að vera Kanamellubarn“ Ólöf Skaftadóttir skrifar 27. júní 2015 09:00 Magnea Rivera Reinaldsdóttir. Vísir/Valli
Magnea Rivera Reinaldsdóttir, betur þekkt sem Amma Maddý, er litríkur karakter. Hún er skemmtileg, hreinskilin og afar lífsreynd. Eftir henni hafa verið nefndir leikhópar og heilt leikrit sett upp um viðburðaríka ævi hennar. Hún fann föður sinn 48 ára eftir tuttugu ára leit. Amma Maddý er greind með geðhvörf, segist hafa verið alki frá fyrsta glasi og skildi við manninn eftir hálfa öld. Hún segir jafnréttismál að konur á hennar aldri fái að vera með yngri mönnum ef þær kjósa það. Magnea ákvað ung að hún ætlaði sér að finna pabba sinn. „Mamma sagði mér alltaf að hann væri dáinn. Innst inni vissi ég að hann var lifandi, ég hafði einhverja tilfinningu. En ég ákvað að leita hans ekki á meðan mamma lifði því það hefði orðið henni mikið áfall að ég kæmi allt í einu með dátann þrjátíu árum seinna inn í stofu. Þannig að ég beið þangað til hún dó,“ segir Magnea þegar blaðamaður hittir hana fyrir á kaffihúsi í bænum. Magnea er sjötíu ára gömul og hefur lifað viðburðaríka ævi, svo vægt sé til orða tekið. Hún fæddist í miðbæ Reykjavíkur og átti heima þar ásamt móður sinni og bróður, sem hún heitir í höfuðið á, Magnúsi.Rólegt skynsemishjónaband „Mamma varð ólétt eftir Ameríkana sem lætur sig hverfa. Þannig að þarna stendur hún allt í einu ein, verkakona með nýfætt barn og tíu ára gamlan son. Það var ekkert sem hún gat gert annað en að gerast ráðskona í sveit. Það var ekki hægt að vinna fyrir sér sem verkakona með tvö börn á þeim tíma,“ rifjar Magnea upp. Móðir hennar lagði leið sína í Hafnirnar og varð ráðskona. „Hún giftist manninum þar bara strax. Ég vissi ekki fyrr en seinna að þetta var skynsemishjónaband. Hann var embættismaður og skólastjóri og þurfti konu til að sjá um heimilið og hún þurfti mann til að ala upp börnin með sér.“ Magnea lýsir hjónabandinu þeirra á milli sem góðu og rólegu. „Svo deyr hann þegar ég er tíu ára, sem er með mestu áföllum sem ég hef orðið fyrir. Ég var svo svakalega hænd að honum. Við mamma áttum ekki jafn gott samband. Pabbi var auðvitað strokinn úr landi og hún yfirfærði það dálítið á mig. Hún talaði um að ég væri með hans neikvæða skap og svona.“ Svo deyr Jón, fóstri Magneu. „Við flytjum til Keflavíkur til að mamma geti unnið fyrir sér, og þarna er ég allt í einu alltaf ein, í staðinn fyrir að hafa mömmu og pabba og bróður minn og fullt hús af fólki. Og það var erfitt.“Vísir/GVAStríðsbörn á Íslandi Magnea ólst upp í Keflavík og gekk þar í skóla. Hún beið alla tíð eftir að hefja leitina að föður sínum. „Ég byrjaði að leita að honum um leið og mamma dó. Þá var ég 28 ára. Það tók mig tuttugu ár að finna hann. Þá var maður sem skrifaði í dagblaðið að hann hefði fundið pabba sinn í gegnum bandarísku símaskrána. Þannig að ég setti mig í samband við hann. Og það voru margir sem hringdu í hann í sömu sporum, svo hann ákvað að boða okkur öll inn á skrifstofu sína. Þarna ákváðum við að stofna samtök sem hétu Samtök stríðsbarna á Íslandi.“ Magneu fannst gaman að starfa í samtökunum. Þau útbjuggu eyðublöð sem þau létu fólk fylla út, hversu mikið það vissi um feður sína. „Svo reyndum við að finna þá í gegnum herinn og bandarísku símaskrána. Þarna talaði svo einu sinni maður sem sagðist hafa fundið pabba sinn í gegnum sakadóminn. Hann ákvað að athuga hvort mamma hans hefði verið í einhverju sambandi við bandaríska herinn og fann allt um manninn. Þarna er ég búin að leita í 17 ár. Ég fer sömu leið og spyr hvort til séu einhverjir pappírar um Guðbjörgu Grímsdóttur, móður mína. Það liðu tvær mínútur þangað til afgreiðslustúlkan kom með þykka möppu og sakadómurinn var fimm mínútum frá heimili mínu. Það var þannig stutt í allar upplýsingarnar sem ég hafði leitað svona lengi. Þá hafði mamma verið að leita að pabba í gegnum utanríkisráðuneytið, því bróðir ömmu var þá ráðherra, þannig að hann hafði aðgang að toppunum hérna. Og það voru bréfaskipti milli bandaríska hersins og utanríkisráðuneytisins, þar sem þeir gáfu upp hernúmer sem er eins og kennitala og heimilisfang.“„This is Reinaldo, your father“ Magnea fór heim og skrifaði pabba sínum, Reinaldo Rivera, bréf með myndum af sér og þáverandi eiginmanni og börnum. „Það liðu dagar, ekki vika, þá hringdi síminn á sunnudagsmorgni klukkan átta og sagt er í símann: Good morning, this is Reinaldo, your father.“ Magnea segist ekkert vita hvernig hún átti að vera í símtalinu. „Ég hló og grét til skiptis. Við töluðum saman í klukkutíma. Hann sagði mér að við værum frá Puerto Rico og ég ætti þrjá hálfbræður í Ameríku og svo spurði hann hvort hann mætti koma. Og ég sagði: Nei, guð minn góður, ekki strax. En svo var hann kominn eftir viku. Það var mjög sérstakt.“ Hún segir erfitt að lýsa því að vera allt í einu orðin dóttir manns sem hún hafði aldrei séð áður. „Svo erum við svo lík. Það var erfitt, en ofboðslega tilfinningaþrungið að hitta manninn. Hann var hérna í viku í það skiptið, en við höfðum mjög mikil samskipti þar til hann dó. Hann tók mér vel.“Rifust um pólitík og Bandaríkin Um 100 feður komu í leitirnar fyrir tilstilli Samtaka stríðsbarna á Íslandi. „Ég var mjög heppin en margir lentu í því að feður þeirra sögðust komnir með nýtt líf og treystu sér ekki í þennan pakka. En pabbi tók mér opnum örmum. Ég er reyndar ekki í miklu sambandi við bræður mína eftir að hann faðir minn dó, en ekkert slæmu – bara ekki miklu. Pabbi var límið í þessu. Hann var fjölskyldurækinn, en skapmikill. Hann var nýkominn heim frá Kanada í eitt skiptið, þegar hann fór í smá aðgerð og fékk hjartaslag og dó. Hann sagði alltaf: ég vona að Guð gefi að það þurfi ekkert hjúkrunarfólk að hugsa um mig, því ég er óalandi og óferjandi. Sem var alveg rétt hjá honum. Þannig að það voru allir ægilega fegnir þegar hann dó svona snögglega. Okkur þótti rosalega vænt hvoru um annað. En við rifumst um pólitík og hvort Bandaríkin væru slæm eða góð.“Tengdó afritar samtalsmeðferðinaSvo var gert leikrit? „Já, það er kapítuli útaf fyrir sig. Ég var búin að vera lengi hjá geðlækni því ég átti erfiða bernsku og svona. Ég ákvað að fara í samtalsmeðferð og segja frá öllu. Læknirinn ráðlagði mér að skrifa niður ævina, þannig að ég fór og leigði mér bústað og skrifaði eins langt og ég mundi aftur og fram að þessum degi. Svo á ég tengdason sem heitir Valur Freyr og er leikari og hann fékk strax áhuga á þeim hluta ævisögunnar sem var leitin að pabba. Eftir langa umhugsun lánaði ég honum söguna. Hann lék mig og mömmu. Þetta var ótrúlega vel gert hjá honum.“ Verkið, Tengdó, var sýnt 67 sinnum, sem er sennilega met á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu, en upphaflega átti að sýna það átta sinnum. Tengdó fékk fjórar Grímur. Var ekki erfitt að sjá þennan kafla lífsins á sviði? Var það kannski heilandi? „Ég veit ekki hvað ég á að segja, bæði og. Það var ofsalega skrýtið og erfitt og það brutust fram allar mögulegar tilfinningar. Ég grét, og það grétu margir – en ég var samt svo þakklát hvað Valur gerði þetta vel, af virðingu. Hann sýndi mér allt sem hann skrifaði og gerði áður en hann kláraði. Ég vissi að ég gæti treyst honum. Fyrst fannst mér þetta erfitt og hugsaði: Hvernig dettur þér í hug að setja þennan hluta ævi þinnar upp í ginið á almenningi? En svo þegar tíminn líður þykir mér vænt um þetta verk. Ég gæti ekki fengið betri tengdasyni þótt þeir væru pantaðir af pöntunarlista. Þetta gerir mig sterkari og kenndi mér að hætta að vera með leyndarmál – skömmin fór og nú er ég ánægð með þetta. Það er bara flott að vera „kanamellubarn“.“„Góði minn, ég ræð mínu lífi“ Magnea er greind með geðhvörf. Hún hefur átt löng góð tímabil, en svo veikst mikið á milli. „Líkamleg veikindi eru ekkert við hlið kvíða. Þú myndir ekki óska óvini þínum svona kvíða. En ég ef verið ofboðslega heppin með lækna, bæði inni á geðdeild og á Kleppi og lækninn úti í bæ, sem ég geng ennþá til. Þetta er dásamlegt fólk. Það er eins og ég hafi verið leidd að bestu læknunum. Svo hef ég mikla hjálp fengið í Hugarafli, sem er algjör vin í eyðimörkinni fyrir fólk með geðraskanir. Allir með svo stórt hjarta og vilja hjálpa, kærleiksríkt og klárt fólk. Og að eiga fjölskyldu sem maður getur hvílt í þegar maður er veikur, eins og ég á, það er auðvitað engu líkt.“ Magnea lýsir aðdraganda veikinda sinna fyrir tveimur árum sem viðburðasnauðum tíma. „Það var nákvæmlega ekkert að ske í mínu lífi nema gott. En veistu hvað ég gerði? Ég henti lyfjunum. Ég ákvað einn daginn að mér væri batnað. Geðlæknirinn minn var mjög mótfallinn þessu – sagði það stórhættulegt. Hann var 41 og ég var 68 þegar þetta gerist, og ég sagði: Góði minn, ég ræð mínu lífi, ég er 68 ára.“Vísir/ValliVerslaði veglega í maníunni Það liðu einhverjar vikur þangað til Magnea veiktist meira en nokkru sinni fyrr. „Það skrýtna er að ég fór aftur á sömu lyf og ég hafði hent og þá virkuðu þau ekki. Það veit enginn af hverju. Það voru reynd 7 þunglyndislyf á mér áður en lyfin byrjuðu að virka. Ég lá inni á deild í tíu mánuði. Það er samt svo miklu eðlilegri nálgun af geðlæknum núna en fyrst þegar ég var að veikjast. Þegar ég lá inni á geðdeild '97 talaði enginn um mataræði, svefn og hreyfingu, en núna er mikið lagt upp úr því. Það er jákvæð breyting. En ég hef bara farið í eina alvöru maníu á ævinni. Það var rétt fyrir Hrun.“ Magnea hlær þegar hún rifjar upp maníuna. „Mér datt í hug að versla veglega, þannig að ég keypti tvo sumarbústaði, eina íbúð, nokkur hundruð metra af gardínuefni, tólf farseðla til Bandaríkjanna, og eitthvað fleira. Við vorum að fara á ættarmót til Puerto Rico að hitta föðurfjölskylduna. Þá vorum við tólf í fjölskyldunni. Mér fannst þetta alveg rakið, ég bauð þeim til BNA og þau keyptu flugið áfram. Þegar ég fór svo upp á deild sagði geðlæknirinn við mig: Magnea mín, ég skil þetta ekki, ætlarðu 12 sinnum til Ameríku? Nei nei, við erum tólf sko, dæturnar og tengdasynir og barnabörn og við förum öll. Og við fórum. Þá var mér reyndar batnað.“Góður tími til að fara í maníu „Svo þurfti maðurinn minn að fara í að vinda ofan af þessum ósköpum. Ég hafði líka selt húsið sem við bjuggum í. Það var ekki hægt að draga það til baka. Ég falsaði nafnið hans á alla pappíra og fannst það ekkert mál. Fór í bankann, fyrir hornið með pappírana, skrifaði nafnið hans og inn aftur og þjónustufulltrúinn gerði enga athugasemd við það að ég var tvær mínútur að verða mér úti um undirskrift mannsins. En þá gátu allir fengið lán. Ég lenti á voða góðum tíma í maníunni.“ Magnea hlær. Hún segist vera fín þegar hún er á lyfjunum. „Ég mun aldrei hætta aftur á lyfjunum. Fólk hefur svo mikla fordóma fyrir geðlyfjum, en ég þakka Guði fyrir að þau séu til. Annars væri ég dauð. Ef ég er alveg heiðarleg þá held ég að þetta hafi verið fordómar gagnvart geðlyfjum. Mér hefði aldrei dottið í hug að hætta á lyfjunum ef ég væri með sykursýki.“Kýldist út af einni pípu Móðurfólk Magneu smakkaði varla vín, en sjálf átti hún í vandræðum með áfengi og vímuefni. Þegar hún hitti föðurfjölskyldu sína loksins, 48 ára, fór ýmislegt að renna upp fyrir henni. „Þegar ég hitti fólkið mitt úr föðurfjölskyldu og kynntist bræðrum mínum, þá vorum við öll alkóhólistar og kallinn líka. Mér dettur í hug að þarna sé tenging,“ segir Magnea og hlær. Hún hóf 16 ára að drekka og segist hafa verið alki frá fyrsta glasi. „Ég drakk mig dauða á fyrsta fylleríinu og svo bara drakk ég og drakk. Svo þegar ég var rúmlega tvítug og bjó í Keflavík, þá flæddi bara niður af Keflavíkurflugvelli hassið og það þótti ekkert meira en að reykja sígarettur í þá daga. Ekkert gras, þetta var bara hass frá Líbanon og ógeðslega sterkt. Maður kýldist út af einni pípu. Þannig að ég fór fljótt að reykja daglega, svo fór ég að nota pillur, róandi og örvandi, spítt um helgar og róandi til að ná mér niður. Síðustu tíu árin var ég í daglegri neyslu, Valíum á morgnana. Ég fór í gegnum nám og fékk fína vinnu með þessu.“ Þegar Magnea var enn í neyslu, sem hún lét af fyrir rúmum þrjátíu árum var ekki búið að greina hana með geðhvörf. „Fyrst hélt ég að ég væri ekki í nægilegum bata frá alkóhólisma en svo komst ég að því að þetta var honum algjörlega óskylt, annar sjúkdómur.“Skildu eftir hálfa öld Talið berst að fyrrverandi eiginmanni Magneu. „Ég kynntist manninum þegar ég var tíu ára. Við vorum saman í bekk í Keflavík. Hann sagði nú stundum, að þegar hann sá mig koma inn í bekkinn, með svarta hárið og krullurnar og dökku húðina, þá hefði hans líf verið skráð. Hann er ofboðslega góður maður og pabbi og afi og eiginmaður, finnst mér. Við vorum búin að búa saman í tæplega fimmtíu ár þegar við skildum fyrir hálfu ári.“Hvernig er að skilja eftir hálfa öld? „Hann óskaði eftir skilnaði. Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og var rosalega erfitt. Af því að ég hafði aldrei átt neitt líf sem fullorðin kona án hans. En ég tók strax þann pól í hæðina að hafa þennan skilnað ekki eins og stríð, við vorum á leiðinni að verða langafi og -amma og ég vildi ekki stríð. Við höfum alltaf haft talsvert samband og höfum enn, farið saman í afmæli hjá barnabörnum sem eru níu, útskriftir og frumsýningar, því við eigum börn sem starfa mikið í listum og í leikhúsi. Ég var ótrúlega fljót að jafna mig og líta á þetta sem nýtt tækifæri, að kynnast sjálfri mér betur og hvað ég vil, ein. Núna er ég orðin sátt.“ Magnea hafði aldrei gert neitt nema með honum. „Þetta var eins og nýtt líf. Bara það að búa ein, vakna ein á morgnana. Hvað á maður að gera einn klukkan átta á morgnana? Við vorum rosalega góðir vinir og erum í raun og veru enn, það er ekkert tekið í burtu.“Jafnréttismál að fá að elska yngriEn er Magnea eitthvað að slá sér upp? „Já. Sem er mjög sérstakt og óvenjulegt á Íslandi af því að maðurinn er talsvert yngri en ég. Við erum að tala um áratugi.“ Magnea skellir upp úr. „Það er ekki viðtekið á Íslandi að konan sé þetta eldri en maðurinn í ástarsambandi! En þetta er bara jafnréttismál. Af hverja mega mennirnir vera miklu eldri en konurnar? Ég viðurkenni alveg að ég hrekk stundum sjálf í kút þegar ég man eftir þessum aldursmun og hugsa: Á hvaða ferðalagi ert þú eiginlega Magnea? Ég var mjög hrædd um hvað fólk myndi segja um okkur, þegar við fórum að vera saman og ég tala nú ekki um að opinbera þetta hér í viðtali í Fréttablaðinu. Ég óttast fordómana og ég óttast höfnun. En ég er 70 ára og ég ætla ekki að láta fordóma samfélagsins stoppa mig í þessu. Það kemur ekki til greina.“ Hún heldur áfram. „Ég mæli með því að konur á mínum aldri láti aldurinn ekki stöðva sig. Við getum allt og það er æðislegt að fá að kynnast sér svona upp á nýtt. Svo á ég dásamlega fjölskyldu sem styður við bakið á mér hvað sem á dynur og heldur mér ungri – besta vinkona mín er 25 ára, barnabarnið mitt hún Kolfinna. Ég er æðislega þakklát fyrir þau.“ Tvær af ömmustelpum Magneu, Salka og Kolfinna, eru í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum. „Svo hef ég óskað eftir því að fá að vera meðlimur í hljómsveitinni. Mér finnst þær vera æðislegar og ég er mjög stolt af þeim eins og af allri minni fjölskyldu. Reykjavíkurdætur hafa tekið því vel og málið er í athugun.“
Mest lesið Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Erlent Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Innlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Innlent Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Innlent Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Erlent Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Erlent Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Innlent Fleiri fréttir Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Bein útsending: Skýrsla samráðshóps um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum Tveir handteknir fyrir húsbrot og einn fyrir að vera ólöglega á landinu Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Sjá meira