Mikilvægt að ABC fái frið fyrir deilunum 27. júní 2015 07:00 "Börnin, kennararnir og stjórnendur fagna breytingunum,“ segir Samúel Ingimarsson, starfsmaður ABC. mynd/ástríður „
Þessi uppþot og óeirðir á svæðinu er eitthvað sem við sjáum ekki. Það sem Þórunn hefur sagt á við engin rök að styðjast,“ segja Samúel Ingimarsson og Ástríður Júlíusdóttir. Þau eru bæði starfsmenn ABC á Íslandi og voru ráðin tímabundið til starfa sem fulltrúar á vettvangi í Kenía. Fréttablaðið hefur greint frá illvígum deilum ABC barnahjálpar á Íslandi og ABC í Kenía. Þórunni Helgadóttur var sagt upp störfum en hún vill meina að staða hennar í Kenía sé óbreytt, enda sé um tvö aðskilin félög að ræða. ABC á Íslandi bendir hins vegar á samþykktir ABC í Kenía og að Þórunn þiggi laun samkvæmt ráðningarsamningi við ABC á Íslandi.Þá sakar Þórunn samtökin á Íslandi um mútur í Kenía og ólögmæta yfirtöku samtakanna. Samtökin á Íslandi segja þær ásakanir ekki eiga við rök að styðjast. Þórunn hafi brugðist trausti samtakanna gróflega. Þá hafi hún reynt að sölsa undir sig félagið í Kenía og eignir samtakanna. „Fyrrverandi formaður virðist ekki vilja sleppa takinu og gerir allt til þess að berjast fyrir því. Þetta er neyðarástand og við erum hérna til þess að brúa bilið þar til nýr formaður tekur við,“ segir Ástríður en hún og eiginmaður hennar Samúel fóru til Kenía í júní. „Börnin, kennararnir og stjórnendur í skólanum í Kenía fagna breytingunum. Þeim leið illa áður,“ segir Samúel og á við formannsbreytinguna í Kenía. „Þetta voru löngu tímabærar breytingar.“ Hjónin segja nú frið ríkja í skólanum. „Nemendurnir eru að læra, þeir fá fæðu og þeim líður vel,“ segir Ástríður sem harmar að styrktarforeldrar hafi áhyggjur af börnum sínum. ABC á Íslandi hefur boðað til kynningarfundar með stjórnarmönnum, framkvæmdastjóra og lögmanni ABC í næstu viku þar sem fjallað verður um stöðu mála. Samúel segir deilurnar óhjákvæmilega hafa áhrif í Kenía. ,,Í Kenía byggist allt á samskiptum og það er auðvitað sárt fyrir fólkið að standa á milli í þessu stríði. Við Ástríður mætum þó bara endalausri hlýju.“ Þórunn greindi Fréttablaðinu frá því að lögregluyfirvöld í Kenía væru komin í málið og hefðu vísað Samúel úr landi vegna ólögmætrar yfirtöku á starfseminni. Samúel og Ástríður segja hins vegar lögreglu ekkert hafa með málið að gera, heldur rannsaki það stofnun á vegum kenískra yfirvalda sem hafi eftirlit með hjálparstofnunum. Einar Gautur Steingrímsson„Við erum samt ekki í Kenía til þess að leysa deilur milli Þórunnar og stjórnarinnar. Við erum ekki hér til að berjast. Hér erum við vegna barnanna, starfsins og fólksins. Þetta eru meðal annars munaðarlaus börn sem verið er að mennta og fæða,“ segir Ástríður og bætir við að það sé svo mikilvægt að starfið fái að vera í friði fyrir deilunni. „Þórunn hefur í fjölmiðlum reynt að grafa undan starfi ABC og trausti stuðningsaðila og ekkert dregið undan í þeim efnum. Það er betra að starfið sé hjá þeim sem vilja vernda það. Venjulegt fólk sem teldi sig vera beitt órétti myndi ekki fara beint í fjölmiðla til þess að skaða hjálparstarf,“ segir Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður ABC barnahjálpar á Íslandi, og líkir málinu við söguna af Salómon konungi. „Þegar tvær konur deildu um hvor átti barnið þá lét hann þá konu hafa barnið sem vildi vernda það en ekki þá sem vildi skaða það.“
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Fleiri fréttir Hildur Lilja Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Sjá meira