Undirbúa útgáfu á nýju efni með fatarisa Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. júní 2015 10:00 Hljómsveitin Young Karin í samstarf við fatarisann 66°Norður. vísir/ernir „
Við erum að undirbúa útgáfu á næstu EP-plötu og njótum liðsinnis 66°Norður við það. Þetta er nýtt verkefni unnið í samstarfi við 66°Norður og verður gert á nýstárlegan hátt,“ segir tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson. Hann getur þó ekki farið nánar ofan í samvinnuverkefni hljómsveitar sinnar, Young Karin, og fataframleiðandans. Young Karin hefur í nógu að snúast um þessar mundir og er á leið til Danmerkur að spila á Hróarskeldu. „Við erum mjög spennt og höfum verið að undirbúa þá tónleika frekar lengi. Við erum með fullt af flottu stöffi í ofninum,“ segir Logi Pedro en hann myndar sveitina ásamt söngkonunni Karin Sveinsdóttur. Young Karin ætlar ásamt hljómsveitinni Vök að halda eins konar kveðjutónleika undir yfirskriftinni Húrraskelda á Húrra í kvöld, en báðar sveitirnar spila á Hróarskeldu. „Við ætlum að frumflytja eitthvað af nýju efni í kvöld geri ég ráð fyrir og líka á Hróarskeldu,“ segir Logi Pedro. Hann er að fara í fyrsta sinn á hátíðina og er orðinn spenntur. „Við verðum þarna yfir alla hátíðina og erum mjög spennt. Ég er samt pínu kvíðinn því ég er svo félagsfælinn og er að fara að vera þarna í viku. Þetta verður samt geggjað,“ bætir Logi Pedro við léttur í lundu. Ásamt Young Karin og Vök eru hljómsveitirnar The Vintage Caravan og Kippi Kaninus framlög Íslands á Hróarskelduhátíðinni í ár sem fram fer dagana 27. júní til 4. júlí. Fleiri þekkt nöfn koma fram á hátíðinni í ár eins og Muse, Pharrell Williams og Sir Paul McCartney.
Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Fleiri fréttir Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Sjá meira