Tafirnar bitna á sakborningum fanney birna jónsdóttir skrifar 22. apríl 2015 08:00 Erlendur Þór Gunnarsson. „
Eðlilega hefur framvinda þessa máls verið afar bagaleg, bæði fyrir minn skjólstæðing og brotaþola, sem og aðra sakborninga. Nú er að verða ár liðið frá því að þetta kom upp og í raun hefur ekkert heyrst af þessu máli frá því í júní 2014 þegar tekin var skýrsla af skjólstæðingi mínum. Það hefur enginn hag af því að sakamál hafi ekki faglega framvindu í kerfinu,“ segir Erlendur Þór Gunnarsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi eins sakborninga í hópnauðgunarmáli frá því fyrir um ári. Fréttablaðið greindi frá því í gær að málið, þar sem fimm piltar voru kærðir fyrir hópnauðgun í kjölfar þess að sextán ára stúlka lagði fram kæru á hendur þeim fyrir nauðgun í samkvæmi í Breiðholti, sé enn til skoðunar hjá ríkissaksóknara um ári eftir atvikið. Meðal gagna sem stúlkan lagði fram er myndband af atvikinu. Vitað er að myndbandið fór í dreifingu á netinu auk þess sem allir aðilar málsins voru nafngreindir á samfélagsmiðlum. Erlendur vonast til að eitthvað fari að gerast í málinu fljótlega. „Við vitum þó að álagið hjá Ríkissaksóknara er of mikið en þar starfar mikið af góðu fólki og því skulum við leyfa okkur að vona að þættir þessa máls taki að skýrast á næstu vikum.“ Páll Kristjánsson, verjandi annars sakbornings, tekur í sama streng. „Ég er ítrekað búinn að kalla eftir upplýsingum um stöðu málsins en engar fengið. Maður veltir því fyrir sér hvort sakborningar eigi að líða fyrir þessar tafir, þeir hafa ákveðin réttindi líka. Er eðlilegt að þessi töf bitni á þeim? Biðin er verst fyrir þá,“ segir Páll.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira