Gagnrýnir tafir á rannsókn bótasvika Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 21. mars 2015 12:00 Sigríður Lillý vill að bótasvik séu tekin alvarlega og segir rannsóknarhagsmuni í húfi þegar rannsókn mála tefst óhóflega.
Ekki enn hefur verið gefin út ákæra vegna bótasvikamáls þar sem aðstandendur látinnar konu sviku út lífeyri hennar í tíu ár. Fréttablaðið greindi frá því að Tryggingastofnun kærði málið til lögreglu árið 2011 og því hefur það verið ansi lengi í rannsókn. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar segir bagalegt þegar rannsókn mála dregst á langinn en líka fyrir þá kærðu sem þurfi að bíða árum saman eftir niðurstöðu. Þá geti töf á rannsókn spillt rannsóknarhagsmunum. „Það er alltaf bagalegt ef rannsókn mála dregst á langinn - fyrir kæranda en einnig hlýtur það að vera erfitt fyrir hinn kærða að þurfa að bíða árum saman eftir niðurstöðu máls. Töf á rannsókn getur spillt rannsóknarhagsmunum og leitt til þess að erfiðara verði að sanna atvik máls og innheimta sviknar greiðslur.“ Sigríður Lillý segir flestum svikamálum ljúka á annan hátt en með lögreglurannsókn. Aðeins þau alvarlegustu eru kærð. „Mál sem varða mikla fjármuni eða að okkar mati einbeittan vilja til svika, segir hún en heimildir Fréttablaðsins herma að sviknar bætur nemi tugum milljóna króna. Önnur mál sem kærð hafa verið til lögreglu varða bótasvik móður sem rangfeðraði barn sitt í ágóðaskyni og einstakling sem sagði rangt til um fjölskylduaðstæður sínar. „Almannatryggingakerfið er afar mikilvægur þáttur velferðarkerfisins sem standa verður vörð um, svo um það sé sátt. Það almannafé sem til þess er varið má ekki liggja á glámbekk, opið fyrir þjófnaði. Tryggingastofnun greiðir ríflega 100 milljarða króna árlega, eða um fimmtung fjárlaga til viðskiptavina sinna á grundvelli þeirra réttinda sem löggjafinn ákvarðar. Komist einstaklingar með sviksamlegum hætti inn í greiðslukerfið gætu þeir tekið sér umtalsverða fjármuni. Í raun gætu þeir orðið áskrifendur að greiðslum sem þeir eiga engan rétt á um langan tíma ef ekkert er að gert,“ bendir hún á. „Bótasvik eru þess vegna almennt litin afar alvarlegum augum í löndunum allt í kringum okkar og það verðum við að gera líka. Við höfum átt gott samstarf við lögregluna sem hefur sýnt þessu ákveðinn skilning, en margra ára tafir við rannsókn þeirra mála sem TR hefur kært eru okkur mikið áhyggjuefni. Mikilvægt er að réttarkerfið eins og réttindakerfið virki eins og til er ætlast og njóti trausts borgaranna.“
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira