Sumarbyrjun áfram köld og vindasöm Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 26. apríl 2015 16:47 Veðrið virðist ekki hafa fengið þau skilaboð að sumarið sé hafið hér á landi. Mynd/Veðurstofa Íslands
Ekki er útlit fyrir að Íslendingar geti brugðið sér í stuttbuxur og sandala á næstunni en veðurspáin næstu vikuna gerir ráð fyrir hvassviðri og hita við frostmark. Þetta er niðurstaða veðurspár Veðurstofu Íslands fyrir næstu viku. Sólin mun þó láta sjá sig í hvassviðrinu á miðvikudag og fimmtudag á Suðurlandi. Norðlendingar mega búast við áframhaldandi sumarsnjó. Með helginni virðist vindinn lægja en þá kólnar í veðri á Norðurlandi en þar kemur hitinn til með að fara allt niður í -7 gráður á celsíus. Á Suðurlandi hins vegar gægist hann rétt yfir frostmark. Það er því engin ástæða fyrir Íslendinga, hvar á landinu sem þeir dvelja, að leggja dúnúlpunni enn. Þó má leggja grunn að sumarbrúnkunni í vikunni með því að gerast tíður gestur í sundlaugum landsins og flatmaga þar í heitum pottum. Hér má sjá spánna frá Veðurstofu Íslands fyrir næstu daga: Norðan og norðvestan 10-18 m/s en 15-23 m/s á Austfjörðum og austan Öræfa. Snjókoma og skafrenningur N- og A-lands, en annars skýjað með köflum eða léttskýjað. Frost 1 til 11 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan, en frostlaust syðst að deginum. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á þriðjudag: Norðan og síðar norðaustan 13-20 m/s, hvassast með NA-ströndinni. Snjókoma eða éljagangur N- og A-lands, en annars bjartviðri. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Frost víða 0 til 8 stig, en frostlaust S-lands að deginum. Á miðvikudag: Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum. Lítilsháttar slydduél syðst, en él með N- og A-ströndinni. Frost 0 til 5 stig en hiti 0 til 4 stig SV-til yfir daginn. Á fimmtudag og föstudag: Útlit fyrir austlæga eða breytileg átt, dálítil él víða á landinu, síst þó norðaustantil. Áfram svalt í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir hægt vaxandi suðaustanátt með slyddu eða snjókomu SV-til en bjartviðri annars staðar. Hiti breytist lítið.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira