Jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar Stefán Árni Pálsson skrifar 30. mars 2015 11:43 Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg. Vísir/E.Ól.
Starfsmönnum sendiskrifstofa Íslands erlendis fækkaði um 25 milli áranna 2007 og 2014 og raunkostnaður starfseminnar dróst saman þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Ríkisendurskoðun. Þar kemur fram að Ríkisendurskoðun hvetji stjórnvöld til að setja sér viðmið um lágmarksfjölda útsendra starfsmanna á hverri sendiskrifstofu og ljúka úttekt á húsnæðismálum þeirra. Þá telur Ríkisendurskoðun að ávallt eigi að auglýsa lausar sendiherrastöður og að jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar. Utanríkisráðuneytið starfrækir 22 sendiskrifstofur í 18 ríkjum. „Hér er átt við sendiráð, fastanefndir og aðalræðisskrifstofur. Samtals voru starfsmenn sendiskrifstofanna 108 árið 2014. Tæplega helmingur voru starfsmenn sem ráðuneytið hafði sent utan til starfa en rúmlega helmingur hafði verið ráðinn ytra. Á tímabilinu 2007‒14 fækkaði útsendum starfsmönnum sendiskrifstofanna um 16 og staðarráðnum um níu.“ Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að rekstrarkostnaður sendiskrifstofanna lækkaði um 3% að raungildi á árunum 2007‒13. Sé miðað við gengisþróun og þróun verðbólgu í viðkomandi ríkjum lækkaði kostnaðurinn um 30% á tímabilinu. Reksturinn hélst þó vel innan fjárheimilda sem ber að mati Ríkisendurskoðunar vott um styrka fjármálastjórn ráðuneytisins. „Bent er á það í skýrslunni að önnur norræn ríki hafi sett sér það viðmið að þrír útsendir starfsmenn þurfi að lágmarki að starfa á hverri sendiskrifstofu. Utanríkisráðuneytið hafi ekki sett sér slíkt viðmið. Árið 2014 hafi mönnun meira en helmings íslensku sendiskrifstofanna verið undir norræna viðmiðinu. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að setja sér viðmið um lágmarksfjölda útsendra starfsmanna á hverri sendiskrifstofu og skilgreina hvernig bregðast skuli við náist ekki að uppfylla það.“ Húsnæði sendiskrifstofa er ýmist í ríkiseigu eða leigt. Í skýrslunni kemur fram að húsnæðiskostnaður skrifstofanna nam 860 milljónum króna árið 2013. Stjórnvöld hafa um skeið unnið að úttekt á húsnæðismálum sendiskrifstofanna í því skyni að kanna hvort selja megi eignir og finna ódýrara húsnæði. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að ljúka þeirri vinnu hið fyrsta. „Bent er á að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skal auglýsa laus embætti opinberlega. Lög um utanríkisþjónustu Íslands veita undanþágu frá þessu ákvæði þegar um er að ræða stöður sendiherra. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að beita sér fyrir því að þessi undanþága verði felld úr gildi. Með því móti yrði stuðlað að auknu gagnsæi og jafnræði við skipanir í stöður sendiherra.“ Á árunum 2004‒14 voru sendiherrar og sendifulltrúar nær eingöngu karlar. Kynjahlutföll voru jafnari meðal annarra háskólamenntaðra starfsmanna sendiskrifstofanna. Í jafnréttislögum segir að atvinnurekendur skuli vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustað og stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök karla- og kvennastörf. Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneytið til að beita sér í þessu efni.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Sjá meira