Innlent

Fékk krampa og festist með fótinn á bensíninu

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Sigurlína og Héðinn voru á leiðinni á boccia-mót í Reykjavík en þau búa á Akureyri. Sigurlína fylgir Héðni gjarnan á ýmsa íþróttaviðburði eins og sést á þessari mynd en hann hefur fengið gullverðlaun á Special Olympics.
Sigurlína og Héðinn voru á leiðinni á boccia-mót í Reykjavík en þau búa á Akureyri. Sigurlína fylgir Héðni gjarnan á ýmsa íþróttaviðburði eins og sést á þessari mynd en hann hefur fengið gullverðlaun á Special Olympics. Mynd/Sigurlína
Í fyrradag fór bifreið á miklum hraða út af þjóðveginum rétt við Hyrnu í Borgarnesi. Í bílnum voru mæðginin Sigurlína Styrmisdóttir og Héðinn Jónsson.

Héðinn sat við stýrið en skyndilega fékk hann mikinn krampa með þeim afleiðingum að hann steig bensíngjöfina í botn og stefndi á ljósastaur sem var við stóran klett.

„Ég sá ekki fyrir mér annað en stórslys,“ segir Sigurlína en hún er lögráðamaður Héðins, sem er einhverfur. „Við vorum að keyra á boccia-mót í Reykjavík og vorum snemma á ferðinni. Sem betur fer var enginn á ferli.“

Sigurlína segir bílinn hafa rokið upp í hraða. Hún hrópaði á son sinn en fékk engin svör, heyrði aðeins skaðræðisóp. Hún tók ákvörðun á þremur sekúndum um að taka í stýrið áður en hraðinn yrði meiri og keyra út af. Bíllinn fór út af rétt við klettinn, yfir hól og lenti með miklum skelli á jörðinni.

„Þetta var þvílíkt högg og ég gerði ráð fyrir að deyja. Allt í einu sá ég reyk koma úr bílnum og þá sparkaði ég hurðinni upp af óskiljanlegum krafti til að bjarga drengnum sem sat meðvitundarlaus við hliðina á mér. Ég skynjaði ekki fyrst að ég væri meidd.“

Mæðginin voru flutt á sjúkrahús. Sigurlína marðist mjög illa en Héðinn slapp mjög vel, líkamlega.

„Hann er í algjöru áfalli og er á róandi. Ég fékk ákúrur fyrir að leyfa honum að keyra en hann fékk tíu á bílprófi og er sérstaklega varkár í umferðinni.“

Talið er að Héðinn hafi fengið flogakast en rannsóknir eru á byrjunarstigi. Hann mun þurfa eftirlit allan sólarhringinn um óákveðinn tíma og mun ekki keyra á meðan beðið er eftir niðurstöðum. Næstu dagar verða erfiðir fyrir mæðginin. Þau þurfa að standa í flutningum en Sigurlína er illa marin og bólgin og Héðinn er í miklu áfalli.

„En til allrar hamingju þá gerðist ekkert sem er ekki afturkræft. Þetta er sár á andlegu heilsuna en það varð ekki banaslys. Það hefði orðið óbætanlegt áfall. Héðinn reynir að vera jákvæður og sagði svo fallega við mig í morgun að hann væri heppinn að eiga enn mömmu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×