Ástsjúkir eltihrellar óalgengari en hinir Snærós Sindradóttir skrifar 26. júní 2015 07:00 Ólafur Örn Bragason segir að of litlar upplýsingar um ofsóknir á Íslandi liggi fyrir. Fréttablaðið/Andri Marinó „
Það er mun algengara að þetta séu fyrrverandi makar. Yfirleitt er það þannig að eltihrellingin byrjar í sambandinu, ekki eftir að því lýkur,“ segir Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra. Fréttablaðið fjallaði í gær um tvö ólík mál kvenna sem höfðu orðið fyrir ofsóknum. Annað málið stóð yfir í nokkra mánuði og þurfti konan að þola mjög grafískar hótanir. Í hinu málinu hefur konan þurft að þola ofsóknir af hendi manns í yfir tuttugu ár. Sá maður virðist telja að hann eigi í einhvers konar sambandi við konuna og á það til að senda henni mjög ástúðleg skilaboð og gjafir. „Það getur verið að fólk sé hreinlega ástfangið af einhverjum og telji að viðkomandi sé ástfanginn af þeim líka en sé bara ekki búinn að átta sig á því ennþá. Flestar rannsóknir á eltihrellum benda þó til þess að það sé sjaldgæft.“ Ólafur segir að erlendar rannsóknir bendi til þess að sjö prósent kvenna og tvö prósent karla hafi orðið fyrir ofsóknum. Áttatíu prósent gerenda séu karlar. „Það virðist ekki vera almennt að karlar séu veikari fyrir þráhyggjum,“ segir Ólafur. „Það eru til feminískar kenningar um að að þetta orsakist af félagslegum reglum sem ýta undir stjórn karla og undirgefni kvenna. Ég held að þau viðhorf geti klárlega komið fram hjá einhverjum hluta karla.“ Ólafur segir að ástæður þess að fyrrverandi makar hefji ofsóknir oft vera höfnun og reiði. Þá hafi ekki verið jafnvægi í sambandinu áður en því lauk. „Þetta geta verið hugsanavillur á borð við það að hún sé mín og þá má enginn annar fá hana. Þetta er frekar ákall um nánd en það er verið að fara ofbeldisfulla leið að því.“Óbilandi trú á að viðfangið elski þáÞeir sem haldnir eru erótómaníu, eða ástsýki, lifa í þeirri blekkingu að viðfang þeirra sé ástfangið af þeim. Ástsjúkir einstaklingar hefja oft ofsóknir á hendur ókunnugu fólki, frægu eða hátt settu í samfélaginu. Erótómanía kemur oft fram hjá fólki sem haldið er öðrum geðsjúkdómum, svo sem geðklofa eða geðhvarfasýki. Fólk haldið erótómaníu á það til að lesa of mikið út úr hegðun þess sem verður fyrir ofsóknunum. Það les ástarjátningar til sín úr líkamstjáningu eða augnaráði. Ástsjúkir einstaklingar geta lifað í þeirri blekkingu að margir séu ástfangnir af þeim samtímis og haft þráhyggju gagnvart því.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Sjá meira