Íslendingur bjargaði 16 ára stúlku frá drukknun í Bretlandi Birgir Olgeirsson skrifar 14. ágúst 2015 15:42 Georgia Wiggans og Ingólfur Eyrfeld Guðjónsson. Vísir/ITV
Ef ekki hefði verið fyrir Ingólf Eyrfeld Guðjónsson þá væri hin sextán ára gamla Georgia Wiggans ekki á lífi. Svona er atvikum lýst á vef ITV þar sem greint er frá björgun Wiggans úr sjónum við borgina Heysham á Englandi á mánudag. ITV birti myndband af því þegar Wiggans þakkaði Ingólfi Eyrfeld fyrir björgunina. „Ég er frekar hrærð því hann bjargaði lífi mínu. Ég er bara glöð að hann og ég erum í lagi,“ er haft eftir Wiggans. Ingólfur þakkar slysavarnarnámskeiðum þessa björgun. „Þjálfunin kom upp í hugann þegar maður var í þessum aðstæðum og þá er maður betur búinn undir það.“ Atvikið átti sér stað þegar Wiggans og vinkona hennar gengu eftir Middleton-söndum nærri Heysham. Þær höfðu verið að leika sér í fjöruborðinu þegar alda hrifsaði þær út á haf. Vinkona hennar náði að synda í land en Wiggans var ekki svo lánsöm. Það voru farþegar á ferju sem komu auga á Wiggans meðvitundarlausa í sjónum og átti Ingólfur leið fram hjá á litlum hraðbát þegar hann sá stúlkuna. „Þegar við nálguðumst hana komst hún allt í einu til meðvitundar og kallaði á hjálp og horfði djúpt í augun mín og sagðist ekki vera synd. Ég myndi segja að hún sé afar lánsöm stúlka.“
Mest lesið Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent „Þetta eru ekki góðar móttökur“ Innlent Hver var Charlie Kirk? Erlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Innlent „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Fleiri fréttir Samdráttur eftir fjögurra ára vaxtarskeið Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Sjá meira