Bumbuboltamaður framleiðir afreksþætti 24. apríl 2015 08:30 Garðar mun birtast landsmönnum á Stöð 2 Sport í allt sumar. Vísir/Valli „
Þetta er náttúrulega fullkomin staða að vera í, enda áhugamál númer eitt, tvö og þrjú og ég fæ að vinna við það,“ segir Garðar Örn Arnarsson sem hleypir af stokkunum spánnýrri þáttaröð um goðsagnir knattspyrnunnar á Íslandi í kvöld. Aðspurður hvaðan kveikjan að þáttunum komi segist Garðar alltaf hafa haft mikinn áhuga á öllu íþróttatengdu „Sjálfur ætlaði ég mér að spila í NBA, en svo var ekki innistæða fyrir því,“ segir hann og skellir upp úr. Hann lætur sér því nægja að spila með B-liði Keflavíkur og rekur svo sögur afreksmanna í sjónvarpi og í formi heimildarmynda. Mynd Garðars um körfuboltamanninn bráðefnilega Ölla, sem féll frá langt fyrir aldur fram, kom honum á kortið „Í kjölfarið fór af stað minningarsjóður sem hefur svo gefið um tuttugu þúsund börnum tækifæri á að stunda íþróttir. Það yljar vissulega hjartanu.“ Síðan hefur hann ekki stoppað. „Upphafið að þessum þáttum, Goðsögnum efstu deildar, má þó rekja til þess að mig langaði alltaf til að gera Ragnari Margeirssyni knattspyrnukappa skil, en ég hef alltaf horft á hann sem algjört legend og vildi heiðra minningu hans.“ Úr varð heil þáttaröð þar sem hann tekur fyrir helstu sparkara landsins í gegnum árin. „Ég held að ekki séu margir sem einblína á að samtvinna íþróttir og heimildarmyndagerð hérlendis, svo ég hef nóg að gera,“ segir Garðar að lokum.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Tónlist Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Fleiri fréttir Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Sjá meira