Fluguveiði og blót á sumardaginn fyrsta Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 24. apríl 2015 07:00 Þessi böðuðu sig í sólinni á Klambratúni. Fréttablaðið/Andri Marinó
Sólin skein skært í Reykjavík í gær sem var einkar viðeigandi fyrir sumardaginn fyrsta. Borgarbúar tóku sólinni fagnandi en hátíðarhöld voru víðsvegar um borgina. Skátafélagið Landnemar brá á leik á Klambratúni í gær. Félagið bauð börnum að leika sér í hoppukastala og að reyna fyrir sér í klifurturni. Renata Emilsson Peskova og Jóhannes Guðmundsson tóku þátt í hátíðarhöldunum í gær. „Þetta er í fyrsta sinn sem við tökum hjólatúr í bæinn,“ sagði Renata. „Við búum í Bústaðahverfi og tókum þátt í skrúðgöngu þar. Síðan komum við á Klambratún og skoðuðum safnið.“Sjá einnig: 80 manns í vatnsslag á Lakjartorgi Ásatrúarfélagið var einnig búið að koma sér fyrir á Klambratúni. „Þetta er síðasti heiðni helgidagurinn í dagatali ásatrúarmanna,“ sagði Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði Ásatrúarfélagsins. „Ásatrúarfélagið var stofnað sumardaginn fyrsta árið 1972. Á þessum degi þökkum við fyrir veturinn og fögnum komandi sumri. Áður fyrr var þetta kallað sigurblót. Við erum að fagna sigursælu ári,“ sagði Hilmar. Utan borgarmarkanna naut fólk sín einnig en við Rauðhóla nýttu hestamenn tækifærið og viðruðu hrossin í góða veðrinu. Við Elliðavatn voru veiðimenn önnum kafnir við að næla sér í eitthvað í soðið. „Þetta er fyrsti fiskurinn sem ég veiði hér,“ sagði Oscar Arnholdt-Olsson, þegar blaðamaður náði tali af honum. „Ég flutti til landsins í október síðastliðnum og hef veitt mikið síðan,“ sagði hann. Oscar er frá Malmö í Svíþjóð og sagir að þar sé sumarið heitara en á Íslandi en hann unir þó kuldanum. „Verstur er þó vindurinn þar sem ég veiði á flugu.“
Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Sjá meira