Bærinn blandi sér ekki í geldingu villikatta Garðar Örn Úlfarsson skrifar 24. apríl 2015 08:00 "Gott samstarf milli okkar og bæjarins er til mikilla hagsbóta fyrir alla bæjarbúa – svo ekki sé talað um dýrin okkar,“ segir Dýraverndunarfélag Hafnarfjarðar. Vísir/Stefán „
Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð gögn sem renna stoðum undir fjölda, bjargarleysi þeirra eða skjólleysi úti í náttúrunni,“ segir í umsögn heilbrigðiseftirlitsins þar sem Hafnarfjarðarbæ er ráðlagt að taka ekki þátt í verkefni um geldingu villikatta. Fréttablaðið sagði frá hugmyndum félagsins Villikatta 29. janúar síðastliðinn. Félagið vildi fá Hafnarfjarðabæ í samstarf við að halda fjölda villikatta í skefjum. Sú aðferðafræði að veiða kettina, gelda þá og sleppa aftur væri mannúðleg leið til að takast á við villikattastofna án þess að aflífa dýrin. „Lengi hefur íslenskt samfélag litið fram hjá vandamálum villikatta, eða litið á þá sem plágu,“ sagði í bréfi Villikatta til Hafnarfjarðarbæjar. Villikettir sögðu enn fremur að aðferðin hefði gefist sérlega vel í öðrum löndum. „Við munum svo sjá til þess að skjól sé á svæðinu og sjálfboðaliðar séu til staðar sem fylgjast með matargjöfum,“ sögðu Villikettir. Hafnarfjarðarbær leitaði álits heilbrigðiseftirlitsins sem í fyrrgreindri umsögn rekur stjórn dýraverndunarmála í landinu og skyldur sveitarfélaga í þeim efnum. Framkvæmd í þessum efnum heyri undir Matvælastofnun sem ekki hafi fjallað um þá aðferðafræði að gelda villikettina. „Með vísun til ofanritaðs er ekki rétt að Hafnarfjarðarbær taki ábyrgð á þessum aðgerðum,“ segir í umsögn heilbrigðiseftirlitsins sem síðasta vetrardag var lögð fram til kynningar í umhverfis- og framkvæmdaráði Hafnarfjarðar. Dýraverndunarfélag Hafnarfjarðar, sem var endurvakið nú í febrúar eftir sautján ára hlé, segir í umsögn til bæjarins það vera sína framtíðarsýn að hafa stjórn á „villikattasamfélögum í bænum“ með geldingaraðferðinni. Mikilvægt sé að virða líferni villikatta. „Þeir eru bæjarfélaginu gagnlegir með því að halda burtu rottum og minkum og hafa fylgt okkur eins lengi og elstu menn muna,“ segir Dýraverndunarfélag Hafnarfjarðar um villiketti bæjarins.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira