Hljóp Laugaveginn á undir fjórum klukkutímum: Stefndi á að vinna en bjóst ekki við að setja nýtt met Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. júlí 2015 13:34 Þorbergur kemur hér í mark í dag á nýju meti. mynd/Laugavegshlaupið
Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu nú rétt eftir eitt á nýju meti, þremur klukkustundum, 59 mínútum og 13 sekúndum. Þorbergur átti einnig gamla metið sem hann setti í hlaupinu í fyrra en þá fór hann kílómetrana 55 á fjórum klukkutímum og sjö mínútum. „Ég bjóst alls ekki við þessu og þetta kemur eiginlega bara á óvart. Ég var strax búinn að tapa þremur mínútum á drykkjarstöðinni út af snjónum í byrjun en svo vann ég það til baka því allar aðrar aðstæður voru eins og best verður á kosið, þurrt og vindur í bakið eiginlega alla leið,“ segir Þorbergur í samtali við Vísi. Hann segir það hafa verið virkilega erfitt og leiðinlegt að hlaupa í snjónum sem var á um átta kílómetra leið í byrjun hlaupsins. „Ég passaði mig á því að taka ekkert of mikið á því þar svo maður sparaði sig ósjálfrátt.“ Þorbergur segir alltaf hafa stefnt á að vinna hlaupið en hann hafi ekki átt von á því að setja nýtt met út af snjónum. Hann segir hafa skipt miklu að hann sé mun sterkari nú en í fyrra enda hafi hann farið í mörg utanvegahlaup síðan þá. Fjögur hundruð hlauparar hlaupa Laugaveginn í ár en aldrei hafa verið fleiri þátttakendur. Þegar Vísir náði tali af upplýsingafulltrúa hlaupsins, Önnu Lilju Sigurðardóttur, rétt fyrir klukkan hálftvö var enginn annar hlaupari kominn í mark en von var á öðrum karli innan skamms.Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, náði þessari mynd af Þorbergi á spretti á Laugaveginum í dag.vísir/vilhelm
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira