Aukin þjónusta við fatlað fólk í Hafnarfirði Stefán Árni Pálsson skrifar 29. apríl 2015 11:05 Guðrún Þórðardóttir formaður Áss styrktarfélags og Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri.
Í morgun undirrituðu, Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri og Guðrún Þórðardóttir formaður Áss styrktarfélags, þjónustusamning vegna búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Klukkuvelli í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Árið 2013 undirrituðu Hafnarfjarðarbær og Ás styrktarfélag viljayfirlýsingu þess efnis að Ás stæði að byggingu og rekstri þriggja búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Skóflustunga að fyrsta kjarnanum sem er að Klukkuvöllum var tekin 3. febrúar 2014. Samningurinn sem undirritaður var í morgun er viðbót við þau búsetuúrræði sem fyrir eru í Hafnarfirði, en 10 heimili fyrir fatlað fólk eru nú þegar rekin af Hafnarfjarðarbæ. Fyrirhugað er að Ás styrktarfélag haldi áfram áætlaðri uppbyggingu þegar nauðsynlegum undirbúningi næstu lóða er lokið. Gert er ráð fyrir að sex íbúar geti flutt inn á Kirkjuvellina í sumar. Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri segir samninginn við Ás styrktarfélag vera tímamótasamning fyrir sveitarfélagið. „Sú leið sem farin er með þessu samstarfi stuðlar að því að sveitarfélagið byggi upp sértæk búsetuúrræði á skemmri tíma og með hagkvæmari hætti en áður“ segir Haraldur. Guðlaug Kristjánsdóttir formaður fjölskylduráðs segir samninginn mikið fagnaðarefni, enda mikilvægt að í bænum standi til boða fjölbreytt búsetuform fyrir fatlað fólk. „Við hlökkum til að sjá líf færast í húsið á Klukkuvöllum nú í sumar og munum fylgja því eftir að áform um seinni húsin tvö gangi eftir.“ Nú standa yfir viðræður við Þroskahjálp um byggingu húsnæðis sem mun leysa af hólmi starfandi heimili sem stenst ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru og fleiri hugmyndir um búsetuúrræði fyrir fötluð ungmenni eru í farvatninu.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira