Umhverfismat háð annmörkum Sveinn Arnarsson skrifar 15. ágúst 2015 07:00 Landsnet hefur lengi viljað leggja nýja Blöndulínu til að styrkja raforkuflutninga á landinu. Telur stofnunin byggðalínuna hringinn í kringum landið löngu sprungna. Landeigendur í Skagafirði og Eyjafirði hafa lengi barist fyrir því að Blöndulína fari á sumum svæðum í jörð. vísir/vilhelm
Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að annmarkar hafi verið á umhverfismatsferli Landsnets varðandi lagningu Blöndulínu 3 frá Blöndu í Húnavatnssýslu að tengivirki að Rangárvöllum í Eyjafirði. Landsnet hafi ekki kannað kosti þess að setja línuna í jörð þrátt fyrir beiðni Skipulagsstofnunar. Ólafur Valsson, eigandi jarðarinnar Hóla í Öxnadal, krafðist endurupptöku matsins, meðal annars á þeim grundvelli að ekki hafi verið bornir saman þeir valkostir að leggja jarðstreng og loftlínu. Skipulagsstofnun taldi sér ekki heimilt að taka málið upp að nýju, en lagði til grundvallar að meta hefði átt þann kost að leggja jarðstreng í stað loftlínu. Skipulagsstofnun lagði fyrir Landsnet árið 2008 að meta jarðstreng til samanburðar við loftlínu á þessari leið sem er um eitt hundrað kílómetra löng. Svonefnd frummatsskýrsla, sem Landsnet skilaði til Skipulagsstofnunar í mars 2012, hafði ekki að geyma slíkt mat að mati stofnunarinnar.Ásdís Hlökk TheodórsdóttirÁsdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, telur að þrátt fyrir augljósa annmarka geti stofnunin ekki tekið málið upp að nýju. „Til þess þurfum við að hafa lagalegar heimildir og eins og er rakið í bréfi til Ólafs er talað um hvaða heimildir við höfum. Það sem við gerum er að við förum í öll þau efnisatriði sem málsaðili vekur máls á til að skoða hvort efnislegir annmarkar eru á málinu sem er óháð því hvort það séu lagalegar heimildir til að taka málið upp aftur,“ segir Ásdís Hlökk. „Hins vegar munum við hafa þetta mál til hliðsjónar þegar sambærileg mál koma inn á borð hjá okkur.“ Skagfirðingar og Eyfirðingar hafa kallað eftir því að jarðstrengur verði kannaður sem alvöru valkostur en Landsnet hefur hingað til ekki gert það. „Ljóst er að héðan í frá muni Skipulagsstofnun ekki taka við frummatsskýrslum frá Landsneti í sambærilegum málum nema jarðstrengur sé tekinn til raunhæfrar skoðunar. Ég mun ekki leyfa loftlínu um land mitt. Umrætt landsvæði hefur mikið verndargildi á landsvísu að áliti Náttúrufræðistofnunar Íslands og nýtur það verndar lögum samkvæmt,“ segir Ólafur Valsson, eigandi Hóla í Öxnadal.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Margrét fær ekki að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu Sjá meira