„Við erum fundin, börnin á myndinni“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. janúar 2015 20:30 Systkinin Anna Margrét og Rafn. Mynd/Jónína Jóhannsdóttir
Listmálarinn Jónína Jóhannsdóttir málaði myndir af átta ára stúlku og fimm ára dreng árið 1982 að ósk móður þeirra, Margrétar Pétursdóttur. Margrét lét lífið eftir baráttu við krabbamein árið 1984 og tók Jónína eftir dánartilkynningu í dagblaði. Myndirnar höfðu aldrei verið sóttar og kunni Jónína engin deili á börnunum auk þess sem runnið hafði í gleymsku hvað móðirin hét. Myndirnar geymdi hún hins vegar í rúm þrjátíu ár þar til hún ákvað á laugardaginn að gera tilraun til að finna börnin með aðstoð Facebook. „Ég stend í flutningum og rakst á myndirnar,“ segir Jónína í samtali við Vísi. „Ég týmdi ekkert að henda þeim. Maður passar þetta. Maður passar börnin.“ Jónína deildi því myndunum á Facebook og gerði færsluna sína opna öllum. Ekki stóð á landsmönnum sem deildu myndinni sem nú hefur verið deilt rúmlega 1800 sinnum. „Þetta snart fólk sem fannst strax vænt um þessi móðurlausu börn“ segir Jónína. Fólk hafi hafist handa við að gúgla, farið á Íslendingabók til að komast að því hvað móðirin hét enda minnti Jónínu í fyrstu að móðirin héti Ásta en ekki Margrét. „Þetta var svo mikil samvinna,“ segir Jónína.Myndin af systkinunum sem málað var eftir.„Þetta er ég og bræður mínir!“ Jónína man eftir því þegar Margrét bað hana um að mála myndirnar af hinni átta ára gömlu Önnu Margréti og hinum fimm ára gamla Rafni eftir ljósmyndum. Jónína segist hafa verið nýbúin að eignast sitt annað barn. „Þá er ég heimavinnandi og er að dúllast fyrir fólk,“ segir Jónína. Hún hafi ekkert þekkt Margréti heitna heldur hafi einhver líklegast bent henni á sig. Jónína segir það hafa verið afskaplega skemmtilega stund þegar henni bárust Facebook-skilaboð frá myndefninu sjálfu, Önnu Margréti. „Við erum fundin, börnin á myndinni,“ stóð meðal annars í skilaboðum Önnu Margrétar til Jónínu. „Þetta er ég og bræður mínir!“ Post by Jónína Jóhannsdóttir.Búin að hlæja mjög mikið Anna Margrét segir að það hafi verið virkilega skemmtilegt að sjá myndirnar af sér og bróður sínum. Mjög margir hafi sett sig í samband við Önnu og sagt að þá grunaði að hún væri stelpan á myndunum. „Það er búið að hlæja mjög mikið. Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt,“ segir Anna sem átti enn eftir að færa bræðrum sínum tíðindin þegar blaðamaður ræddi við hana. Rafn, sá eldri, væri ekki á Facebook en hún hefði „taggað“ yngri bróður sinn Þorgrím Andra. Hann virtist þó ekki hafa séð það.Jónína Jóhannsdóttir.„Ég er eins og pínulítið barn í eigin heimi. Ég á eftir að hringja í þá og láta þá vita,“ segir Anna Margrét. Hún hafi verið hjá föður sínum þegar ábendingin barst um myndirnar. Pabbi hennar hafi skoðað myndirnar en hann hafði ekki hugmyndum að Margrét heitin hefði beðið Jónínu um að teikna myndirnar. Jónína hefur boðið Önnu Margréti að koma og sækja myndirnar. Það ætlar Anna að þiggja með þökkum. Hún segir gaman að vita hvað móðir þeirra heitin hafi verið að bralla á þessum tíma. Þau hafi öll verið ung þegar Margrét lést og muni mismikið eftir mömmu sinni. „Það var ótrúlega mikils virði að vita til þess að hún hefði verið að gera þetta. Enginn hafði hugmynd.“ Post by Jónína Jóhannsdóttir.
Tengdar fréttir Íslensk stelpa leitar uppruna síns - Óskar eftir aðstoð almennings "Núna geng ég með annað barn mitt. Þess vegna fór ég að velta þessu fyrir mér. Hver er uppruninn? Hver er hinn helmingurinn?“ 14. apríl 2014 20:12 Fann pabba sinn eftir 5 ára leit og foreldrarnir fundu ástina á ný Saga Bonniear Theophilus Colvin og foreldra hennar, Júlíönu og Rogers, er ansi mögnuð. 23. janúar 2015 08:30 Fékk svar við bréfi til látins föður Bandaríska stúlkan Ashlynn Marracino fékk svar við bréfinu frá hópi fólks í um 600 kílómetra fjarlægð frá heimabæ hennar í Texas. 15. janúar 2015 22:53 Fertug fann föður sinn - „Með pakka af vasaklútum við höndina“ „Ég hélt því að hann byggi í Bandaríkjunum og þar leitaði ég hans,“ segir Nanna Ósk Jónsdóttir sem hefur leitað pabba síns síðan hún var 15 ára og fann hann loks í gegnum Facebook. 30. apríl 2014 16:40 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Íslensk stelpa leitar uppruna síns - Óskar eftir aðstoð almennings "Núna geng ég með annað barn mitt. Þess vegna fór ég að velta þessu fyrir mér. Hver er uppruninn? Hver er hinn helmingurinn?“ 14. apríl 2014 20:12
Fann pabba sinn eftir 5 ára leit og foreldrarnir fundu ástina á ný Saga Bonniear Theophilus Colvin og foreldra hennar, Júlíönu og Rogers, er ansi mögnuð. 23. janúar 2015 08:30
Fékk svar við bréfi til látins föður Bandaríska stúlkan Ashlynn Marracino fékk svar við bréfinu frá hópi fólks í um 600 kílómetra fjarlægð frá heimabæ hennar í Texas. 15. janúar 2015 22:53
Fertug fann föður sinn - „Með pakka af vasaklútum við höndina“ „Ég hélt því að hann byggi í Bandaríkjunum og þar leitaði ég hans,“ segir Nanna Ósk Jónsdóttir sem hefur leitað pabba síns síðan hún var 15 ára og fann hann loks í gegnum Facebook. 30. apríl 2014 16:40