Jólasveinauppistandið umdeilda sem bæjarstjórinn fyrrverandi telur hafa kostað sig vinnuna hjá Alcoa Birgir Olgeirsson skrifar 10. apríl 2015 08:00 Ólafur Hr. Sigurðsson segir þetta jólasveinauppistand hafa kostað sig vinnuna hjá Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði. Vísir/YouTube
Nú er komið fram myndbandið sem tekið var af jólasveinauppistandi Ólafs Hr. Sigurðssonar í Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði síðastliðinn desember. Vísir hafði fjallað um þetta uppistand Ólafs fyrr í vikunni en hann sagði frá því að það hefði kostað hann vinnuna í álverinu og hafði hann ritað um það grein sem birtist á vef Austurfréttar. Ólafur sagði frá því að hann hefði verið rekinn sem leiðtogi í kerskála í fyrra en hefði verið boðin vinna áfram hjá fyrirtækinu og ákvað hann að fara aftur út „á gólf” að vinna.Sjá einnig: Fyrrverandi bæjarstjóri rekinn frá Alcoa eftir jólasveinauppistand Skömmu síðar, eða í desember síðastliðnum, ákvað hann að gleðja félaga sína á „gömlu vaktinni” í kerskálanum með því að koma í heimsókn sem jólasveinn. Hann færði þeim sælgæti og gos og var jafnframt með jólasveinauppistand. Þessi uppákoma var tekin upp á myndband og sett á netið en nokkrum dögum síðar var hann boðaður á fund í álverinu þar sem honum var tilkynnt að inn fyrir dyr álversins kæmi hann ekki aftur og segir Ólafur þetta jólasveinauppistand hafa farið fyrir brjóstið á yfirmönnum hans. Nú er myndbandið komið fram sem birt er á YouTube-rás Austurfréttar og má einnig sjá hér fyrir neðan.Í myndbandinu má heyra Ólaf gera létt grín að uppsögn sinni en þar talar hann um að gríðarlegt álag sé á jólasveinum, svo mikið að þeir eru líkt og hverjir aðrir framkvæmdastjórar. „Og eru með svona þræla sem sjá um taka til dótið handa krökkunum og svo framvegis. Við notum í þetta dverga og álfa og einhverja titti og svo fáum við einn og einn úr mannheimum sem ekki er hægt að nota,” heyrist Ólafur segja sem jólasveinninn og þá segist hann hafa fengið símtal frá manni sem vildi losna við „leiðtogaræfil” eins og hann orðar það en í Alcoa Fjarðaál eru yfirmenn á vöktum kallaðir leiðtogar.Ólafur Hr. Sigurðsson segir illt fyrir Seyðfirðing að missa góða vinnu hjá Alcoa sem var betur borguð en að vera bæjarstjóri á Seyðisfirði en þeirri stöðu gegndi hann áður í níu ár.„Hann þurfti að losna við einhvern leiðtogaræfil og spurði mig hvort ég gæti ekki tekið hann í nokkra daga. Ég lofaði að taka gripinn en þvílík sending maður minn. Hann var ekki fyrr kominn fyrr en hann fór að tuða um einhvern aðbúnað og svo var svo kalt hjá okkur. Svo var hann að tala um velferð fólksins, eitthvað tómt bull.” Ólafur sagði við Vísi fyrr í vikunni að hann vissi ekki hvað það var sem fór svo fyrir brjóstið á yfirmönnum hans varðandi þetta jólasveinauppistand. „Ég er ennþá að reyna að skilja það. Það var með góðum vilja hægt að lesa út úr því að ég væri fúll en það þurfti að leggja sig í líma við það. Það var ekkert sem var niðrandi eða meiðandi eða hægt að pirra sig yfir hjá Alcoa. Hjá sumum fyrirtækjum hafa menn pínulítinn húmor fyrir sjálfum sér en það örlar ekki fyrir því þarna.”
Tengdar fréttir Fyrrverandi bæjarstjóri rekinn frá Alcoa eftir jólasveinauppistand „Það er illt fyrir Seyðfirðing að missa góða vinnu hjá Alcoa.“ 8. apríl 2015 10:30 Mest lesið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Loðna fundist á stóru svæði Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Fleiri fréttir „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Sjá meira
Fyrrverandi bæjarstjóri rekinn frá Alcoa eftir jólasveinauppistand „Það er illt fyrir Seyðfirðing að missa góða vinnu hjá Alcoa.“ 8. apríl 2015 10:30