„Sá sem framkvæmir fleiri aðgerðir fær hærri greiðslur“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 14. júlí 2015 10:31 Kristján Skúli Ásgeirsson brjóstaskurðlæknir.
Kristján Skúli Ásgeirsson, brjóstaskurðlæknir og einn eiganda fyrirhugaðrar brjóstamiðstöðvar í Ármúla, segir rangt að miðstöðin muni leiða til aukinna útgjalda fyrir ríkið. Brjóstamiðstöðin semji við Sjúkratryggingar þannig að hverjum sérfræðingi verði greitt fyrir hvert læknisverk. Laun lækna muni því fara eftir framleiðni auk þess sem þeir muni taka þátt í ýmsum kostnaði við stofnunina. „Fyrir skurðlækna má með nokkurri einföldun segja að sá sem framkvæmir fleiri aðgerðir fær hærri greiðslur frá Sjúkratryggingum. Slíkt kerfi hvetur til hagkvæmni, þ.e það er reynt að vinna verkin með sem minnstum kostnaði og auka framleiðnina (gera fleiri aðgerðir), sem er ólíkt því sem gerist á ríkisstofnun eins og Landspítala,“ skrifaði Kristján í grein í Fréttablaðið á dögunum.Læknar greiði leiguStundin sagði frá því að Kristján hefði hug á að opna umrædda brjóstamiðstöð í Klíníkinni, að hluta í eigu Ásdísar Höllu Bragadóttur, staðsetta í Ármúla. Fyrirtækið hafi reynt að ná til sín aðgerðum á krabbameinssjúkum konum af Landspítalanum og stofna sérhæfða brjóstamiðstöð. Þá hafi lífeyrissjóðirnir ætlað að leggja fyrirtæki Kristjáns 210 milljónir til tækjakaupa. Kristján segir í pistli sínum að hver og einn læknir beri ábyrgð á hluta kostnaðar, þ.e leigu af húsnæði, tækjum og fleiru. Launin verði því ekki föst eins og gerist á Landspítala, „þar sem það skiptir engu máli hvað þú framleiðir mikið eða lítið, launin verða alltaf þau sömu“. Auk þess sem Kristján segir frá hlutverki sérhæfðrar brjóstamiðstöðvar þylur hann upp ýmsar rangfærslur sem hann segir að settar hafi verið fram að undanförnu. Segir hann til að mynda rangt að eining sem þessi, utan Landspítala, muni leiða til aukins kostnaðar sjúklinga. Nefnir hann þar sem dæmi konu sem greiddi 505 þúsund krónur úr eigin vasa vegna greiningar og meðferða. „Ég fullyrði að Brjóstamiðstöðin, sem fyrirhugað er að verði starfrækt í Klíníkinni Ármúla, muni ekki leiða til kostnaðarauka fyrir brjóstakrabbameinssjúklinga. Með meiri samfellu í greiningu, skurðmeðferð og endurhæfingu, eins og stefnt er að í Brjóstamiðstöðinni, er líklegt að kostnaðurinn lækki,“ skrifar Kristján en pistil hans í heild má lesa hér.Uppfært: Kristján Skúli vill koma því á framfæri að Ásdís Halla Bragadóttir kemur ekki að uppbyggingu eða rekstri Brjóstamiðstöðvarinnar. Brjóstamiðstöðin eigi hlut í Klíníkinni, sem sé rekstrareining utan um lækningamiðstöðina.
Tengdar fréttir Til íslenskra kvenna um sérhæfða brjóstamiðstöð á Íslandi Að gefnu tilefni finnst mér rétt að koma á framfæri nokkrum staðreyndum um stofnun sérhæfðrar brjóstamiðstöðvar á Íslandi og leiðrétta nokkrar alvarlegar rangfærslur sem slegið hefur verið fram. 10. júlí 2015 07:00 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Til íslenskra kvenna um sérhæfða brjóstamiðstöð á Íslandi Að gefnu tilefni finnst mér rétt að koma á framfæri nokkrum staðreyndum um stofnun sérhæfðrar brjóstamiðstöðvar á Íslandi og leiðrétta nokkrar alvarlegar rangfærslur sem slegið hefur verið fram. 10. júlí 2015 07:00