Yfirvöld í Kenía hafa lokað barnaskóla ABC Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. júlí 2015 07:00 Fimmtán milljón króna styrkur frá utanríkisráðuneytinu verður ekki hreyfður fyrr en leyst er úr deilunum. vísir/gunnar salvarsson „
Síðustu vikur hafa verið þær erfiðustu sem ég hef upplifað,“ segir Þórunn Helgadóttir, sem stödd er í Kenía þar sem skóla ABC hefur verið lokað.Fréttablaðið hefur greint frá illvígum deilum ABC á Íslandi og ABC í Kenía. Þórunni var sagt upp störfum en hún er föst á því að staða hennar í Kenía sé óbreytt, enda sé um tvö aðskilin félög að ræða. ABC á Íslandi bendir hins vegar á samþykktir ABC í Kenía og að Þórunn þiggi laun samkvæmt ráðningarsamningi við ABC á Íslandi. Þá sakar Þórunn ABC á Íslandi um mútur í Kenía og ólögmæta yfirtöku á starfseminni. ABC á Íslandi vísa þeim ásökunum á bug. Þórunn hafi brugðist trausti samtakanna og reynt að sölsa undir sig félagið í Kenía og eignir samtakanna. Samúel Ingimarsson og Ástríður Júlíusdóttir eru stödd í Kenía á vegum ABC á Íslandi og voru ráðin tímabundið til starfa á vettvangi. „Eitt af því erfiðasta hafa verið allar lygarnar. Stærsta lygin sem borin er fram fyrir þjóðina er að allt sé í himnalagi í skólanum í Naíróbí,“ segir Þórunn og vísar í kynningarfund ABC á Íslandi fyrir styrktarforeldra um starfsemi samtakanna í Kenía. Á fundinn mættu níutíu manns. Styrktarforeldrar voru látnir vita af því að skólinn væri í góðum málum. Tengt var beint við myndaver í Kenía og nemendur skólans fullvissuðu gesti í salnum um að starfsemi ABC í Kenía gengi eðlilega fyrir sig og að fjármunir rötuðu rétta leið. „Svo er nú engu að síður ekki,“ segir Þórunn. Í síðustu viku hafi barnaverndarfulltrúi á svæðinu gefið út skipun um að loka heimilinu vegna ástandsins. „Þetta var vitað þegar ABC hélt fundinn en þau ákváðu að segja ekki neitt.“Fríður Birna STEFÁNSDÓTTIR MYND/EDDIÁ heimasíðu ABC á Íslandi segir að skólanum hafi verið lokað af hreinlætisástæðum. Hafin sé athugun á fjármálahlið starfseminnar af opinberri eftirlitsstofnun í Kenía. Fulltrúar eftirlitsstofnunarinnar könnuðu skólahúsnæðið og komust að þeirri niðurstöðu að hreinlætisaðstöðu væri mjög ábótavant. Svæðinu var lokað þegar í stað. „Nýtt húsnæði hefur verið fundið og mun starfsemi hefjast að nýju í vikunni,” segir Fríður Birna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri ABC á Íslandi. „Einn af nemendunum var handtekinn fyrir líkamsárás og situr nú inni. Væntanlega sá sami og kom fram á fundi ABC til að sannfæra alla um að allt væri í himnalagi,“ segir Þórunn. Þótt lokunin sé sorgleg hafi hún reynst algjörlega nauðsynleg svo byrja mætti upp á nýtt. Á heimasíðu ABC á Íslandi segir að nú séu peningar frá styrktaraðilum sendir milliliðalaust til Kenía. „Peningarnir berast alltaf. Til dæmis sendum við peninga fyrir mat bara beint til birgja og laun fyrir kennarana fara beint á reikning þeirra,“ segir Fríður Birna.
Mest lesið Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fleiri fréttir Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Sjá meira